137. löggjafarþing — 15. fundur,  5. júní 2009.

staðan í Icesave-deilunni.

[13:49]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Sex þingmenn hafa óskað eftir að ræða frekar um fundarstjórn forseta. Áður en lengra er haldið vill forseti upplýsa í framhaldi af því sem forseti sagði áður að að sjálfsögðu verður farið yfir þetta stóra mál í sölum Alþingis. Forseti hefur einnig komið skilaboðum til viðkomandi ráðherra sem með málið fara um þá umræðu sem hér hefur farið fram svo því sé til haga haldið.