137. löggjafarþing — 15. fundur,  5. júní 2009.

staðan í Icesave-deilunni.

[14:06]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Bhr):

Frú forseti. Hér er logið að okkur dag eftir dag og það er sárt. Við fáum einhverjar upplýsingar, við fáum ekki að vita nærri því nógu mikið, okkur eru skammtaðar upplýsingar og fólkinu í landinu er líka skammtaðar upplýsingar og hlutirnir fegraðir.

Við þurfum að fá ítarlegar upplýsingar til að fá niðurstöðu í þetta mál, við þurfum að skoða það frá fleiri hliðum. Það gengur ekki að farið verði með þetta lengra án þess að þjóðin fái að segja sitt um það.