137. löggjafarþing — 17. fundur, 9. júní 2009.
störf þingsins.
Virðulegi forseti. Eins og hv. þm. Einar K. Guðfinnsson veit var þetta kynnt þingflokkum á föstudag og tekið til meðferðar hjá þingflokki Vinstri grænna á föstudaginn. Meiri hluti þingflokks Vinstri grænna veitti ríkisstjórninni heimild til að ganga frá þessum samningum á þeim forsendum sem kynntar voru en um það voru þó skiptar skoðanir.