137. löggjafarþing — 17. fundur,  9. júní 2009.

Lánasjóður íslenskra námsmanna.

82. mál
[15:21]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Í menntakerfi okkar eru fram undan mjög erfiðir tímar eins og á öðrum sviðum í ríkisfjármálum. Ég nefndi í fyrri ræðu minni að 1 milljarður sem tekinn var af eigin fé Lánasjóðs íslenskra námsmanna fleytti sjóðnum þó fram á vorið þannig að hann gat lánað íslenskum námsmönnum og staðið við skuldbindingar sínar hvað það varðar, þ.e. lánsvilyrði. Þar erum við að tala um 1 milljarð kr.

Á fyrsta ári Icesave-skuldbindinganna munum við borga 36 milljarða kr. í vexti vegna þess samkomulags sem við ætlum að ræða á vettvangi Alþingis á næstu dögum, 36-falt á við þann milljarð sem við tókum úr lánasjóðnum til að reka hann í hálft ár. Við erum að tala um svo gríðarlegar stærðir og þess vegna verð ég að fá skýrt svar frá hæstv. ráðherra vegna þess að það var bullandi umræða úti í samfélaginu um þetta mál og fólk vill heyra viðhorf stjórnmálamanna og þá kannski sérstaklega í stjórnmálaflokki Vinstri grænna sem talaði gegn Icesave-samningum í aðdraganda síðustu kosninga og hélt margar ræður á vettvangi þingsins. Er það svo að þingflokkurinn og ráðherrar Vinstri grænna séu orðnir á því að við eigum að skrifa undir þessar skuldbindingar? Í ljósi þess að utanríkisráðherra Finna sagði að það að ganga frá Icesave-skuldbindingunum væri forsenda þess að við gætum hafið aðildarviðræður við Evrópusambandið og gengið þar inn, er það þá líka orðinn hluti af Evrópustefnu Vinstri grænna að það verði að klára þessar Icesave-skuldbindingar þannig að Vinstri grænir geti elt Samfylkinguna til Brussel þvert á það sem Vinstri grænir sögðu í aðdraganda síðustu kosninga? Við hljótum að spyrja Vinstri græna 45 dögum (Forseti hringir.) eftir síðustu kosningar af hverju þeir hafa snúið baki við tveimur af (Forseti hringir.) stærstu stefnumálum sínum í aðdraganda þeirra kosninga.