137. löggjafarþing — 17. fundur,  9. júní 2009.

Lánasjóður íslenskra námsmanna.

82. mál
[15:32]
Horfa

menntamálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem hér um ræðir er annars vegar sprottið af áralangri kröfu námsmannahreyfinganna og því mati að þetta skipti máli við að jafna stöðu allra námsmanna og lánasjóðurinn sinni þar með sínu félagslega hlutverki. Þetta sprettur líka af því að námsmenn taki í auknum mæli ábyrgð á eigin fjárhagsstöðu með því að ábyrgjast eigin lán. Þarna er kveðið á um það að ef námsmenn uppfylla ekki hin almennu lánshæfisskilyrði verði þeim gert kleift annaðhvort að setja fram ábyrgðarmann eða kaupa bankaábyrgð með þeim kjörum sem þær eru boðnar á.

Útlánaaukning ríkisins af þessu er í fyrsta lagi árið 2012. Það er í raun og veru mikil óvissa um það hve mikil hún kunni hugsanlega að verða. Óformleg könnun sem við höfum gert á stöðunni á öðrum Norðurlöndum þar sem ekki er krafist ábyrgðarmanna virðist ekki benda til að þetta kynni að kalla á sérstaklega aukin vanskil. Hins vegar er rétt hjá hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að ástandið í samfélaginu er þannig að það kunna að verða aukin vanskil.

En það sem Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur líka bent á og benti á þegar samþykkt voru ný lög um ábyrgðarmenn, er að þau lög setja miklar kröfur á sjóðinn, auknar kröfur á sjóðinn um að hann kanni stöðu hvers og eins ábyrgðarmanns, og á sínum tíma gerðu fulltrúar sjóðsins þær athugasemdir við það frumvarp að þetta kynni að breyta tilhögun ábyrgðarmannakerfis lánasjóðsins. Og það sem spilar líka inn í þetta frumvarp og hvernig það er til komið er gerbreytt staða ábyrgðarmanna almennt í samfélaginu og athugasemdirnar sem lánasjóðurinn gerði við frumvarpið á sínum tíma.

Hér spilar margt saman. Í raun og veru gamlar kröfur um jafnrétti til náms, aukin ábyrgð námsmanna á eigin láni og um leið að þeir sem ekki uppfylla lánshæfisskilyrði hafi þennan valkost, en líka að það er breytt staða ábyrgðarmanna almennt í samfélaginu.