137. löggjafarþing — 18. fundur, 11. júní 2009.
stuðningur við Icesave-samkomulagið.
Virðulegi forseti. Stjórnarflokkarnir hafa 34 þingmenn í meiri hluta á móti 29 hjá stjórnarandstöðunni og ég trúi ekki öðru en það dugi til að tryggja þetta mál í höfn. Ég hef líka fulla trú á því að a.m.k. einhverjir þingmenn sjálfstæðismanna styðji þetta mál miðað við forsögu málsins.