137. löggjafarþing — 18. fundur,  11. júní 2009.

Icesave og gengi krónunnar.

[10:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Þó að ekki sé langt um liðið frá því að ríkisstjórnin kynnti svokallað Icesave-samkomulag er þegar farið að koma í ljós að allar þær forsendur sem gefnar voru eða þau rök sem fram voru færð fyrir því að þetta væri æskileg niðurstaða sem þinginu bæri að greiða atkvæði með, eru nú að falla. Ein sú veigamesta var sú að það mundi styrkja gengi krónunnar að leysa þá óvissu sem fylgdi því að vera ekki búin að tapa í Icesave-málinu.

Nú hefur það komið í ljós frá því að þetta samkomulag var kynnt að krónan hefur hríðfallið og hefur ekki verið veikari á árinu. Svo var okkur kynnt það á utanríkismálanefndarfundi í morgun að skuldbindingarnar í erlendri mynt væru í raun ívið hærri en ríkisstjórnin hefur haldið fram fram að þessu svo nú er þessi ríkisábyrgð að nálgast 700 milljarða og allt útlit fyrir það að með þessu samkomulagi sé verið að festa í sessi veikt gengi krónunnar um a.m.k. tveggja áratuga skeið. Þegar menn hafa hangandi yfir sér slíka skuldbindingu í erlendri mynt er ekki nema eðlilegt að krónan haldist veik við þær aðstæður. Hvað gerist svo þegar kemur að því að greiða þetta? Hvernig á íslenska ríkið að geta aflað þess gjaldeyris sem gert er ráð fyrir að þurfi til að standa undir þessu? Vegna þess að til að það ætti að vera hægt þyrfti samt, við þær aðstæður þegar krónan er varanlega veik og hagkerfið er í rúst, að afla meiri gjaldeyris en við höfum nokkurn tíma getað gert í sögunni. Þessir samningar gera því ekki annað en valda hér efnahagslegri óáran næstu árin, koma í veg fyrir að við náum okkur upp úr kreppunni og valda síðan algeru hruni íslensk efnahagslífs ef fram heldur sem horfir, og það hafa ekki verið færð nein rök fyrir því að sú verði ekki raunin.