137. löggjafarþing — 18. fundur,  11. júní 2009.

ummæli Evu Joly.

[10:45]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að tryggja viðunandi starfsaðstöðu Evu Joly hér á landi og þess fólks sem hún kemur með til þess að vinna að rannsókninni. Það er grundvallaratriði og ég tel hverri einustu krónu vel varið sem varið er til þess að efla það að hún hafi þá starfsaðstöðu sem hún telur sig þurfa. Það er fullkomin samstaða í ríkisstjórninni um að tryggja Evu Joly þá starfsaðstöðu.

Komið hafa fram athugasemdir hennar við starf ríkissaksóknara og hefur hæstv. dómsmálaráðherra sagt að það sé í skoðun hvernig á því verður tekið. Ég get tekið undir allt sem fram hefur komið hjá Evu Joly og ég hef heyrt hana segja um það sem vantar á upp á starfsaðstöðu og að skipaðir séu þrír sérstakir saksóknarar í rannsókn á bönkunum.

Ég get líka tekið undir það sem hún segir varðandi vanhæfi ríkissaksóknara og á því verður að taka. Hæstv. dómsmálaráðherra er að vinna að undirbúningi á frumvarpi um þessi mál til að taka á þeim með þeim hætti sem Eva Joly óskar eftir. Ég tel það vera grundvallaratriði.

Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að það er mjög mikilvægt að gera allt sem í valdi ríkisstjórnarinnar og Alþingis stendur til þess að byggja upp traust á nýjan leik meðal þjóðarinnar og að hún hafi trú á þessari rannsókn, að allt sé gert sem hægt er í þessu efni. Ég fullvissa hv. þingmann og þingheim um að svo verður gert af hálfu þessarar ríkisstjórnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)