endurskoðun á stöðu embættismanna.
Frú forseti. Nú vill svo skemmtilega til að fyrirspurnin sem ég hafði hugsað mér að beina til hæstv. forsætisráðherra hefur komið fram og hún hefur svarað henni af röggsemi. (Gripið fram í.) Fyrirspurnin varðaði rannsóknina, Evu Joly og hlutverk hennar.
En ég hef hins vegar aðra spurningu sem ég vel borið fram til hæstv. forsætisráðherra um annað málefni. (Gripið fram í.) Ég ætla að nota tækifærið og gera það. (Gripið fram í: Þetta er óundirbúið.) Þetta er mjög óundirbúið, já. Það varðar þær hrókeringar sem nú eiga sér stað og við höfum heyrt um meðal æðstu stjórnenda embættismanna í Stjórnarráðinu. Við höfum heyrt um að nú sé verið að færa til ráðuneytisstjóra.
Það er ekki alveg nýtt. Það er saga sem við þekkjum 20 ár aftur í tímann, að embættismenn og ráðuneytisstjórar eru færðir til í ráðuneytum eða reynt að koma þeim fyrir í öðrum störfum, þeir sendir til útlanda um tíma og stundum til langdvalar. Mér finnst þetta fyrirkomulag vera gengið sér til húðar, virðulegi forseti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
Ég vil inna hæstv. forsætisráðherra eftir því hvort ekki sé orðið tímabært að taka þetta fyrirkomulag til rækilegrar endurskoðunar. Við höfum upplifað það aftur og aftur að stöður ráðuneytisstjóra eru stundum hápólitískar stöður. Í öðrum tilfellum eru þær algjörlega faglegar og embættislegar.
Ég er þeirrar skoðunar að þær þurfi að vera annaðhvort. Annaðhvort eigi ráðuneytisstjórarnir að vera ráðnir sem embættismenn algjörlega á faglegum forsendum eða að þeir eigi að koma og fara með ráðherrum meira á pólitískum forsendum. Það verður að vera alveg skýrt á hvaða forsendum menn starfa.
Það fyrirkomulag og þær aðstæður sem við búum við núna eru óviðunandi og ég vil inna hæstv. forsætisráðherra eftir því hvort hún telji ekki koma til álita að taka þetta fyrirkomulag til rækilegrar endurskoðunar þannig að við búum til framtíðar við eitthvert (Forseti hringir.) fast fyrirkomulag hvað þetta snertir.