nauðsynlegar aðgerðir vegna alvarlegs ástands efnahagsmála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir innlegg hans og ítreka það sem ég sagði áðan varðandi atvinnustarfsemina, fyrirtækin og erfiða skuldastöðu fyrirtækjanna, að við erum að nálgast hengiflugið þar, við erum að nálgast bjargbrúnina varðandi fyrirtækin. Við megum engan tíma missa við að koma á skýrum reglum um það hvernig taka á á skuldavanda þeirra, með hvaða hætti stendur til að vinna með eigendunum. Stendur til að fara í aðgerðir sem leiða til þess að ríkisbankarnir muni meira eða minna leysa til sín fyrirtækin áður en afskriftir eiga sér stað?
Við skulum hafa það í huga að skuldirnar á fyrirtækin í landinu, þau sem munu lifa af þær hamfarir sem við erum nú að ganga í gegnum, verða á endanum afskrifaðar eins langt niður og þörf krefur og reksturinn getur borið, hvort sem það gerist áður en ríkisbankarnir taka fyrirtækin yfir eða án þess að ríkisbankarnir taki fyrirtækin yfir, það mun verða gert. Það gerist ávallt og spurningin er einungis þessi: Hversu mörg af fyrirtækjunum lifa og halda áfram að skapa störf og tekjur fyrir ríkið og standa undir greiðslugetu heimilanna vegna húsnæðislána og framfærslu, eins og við vitum öll að er mikilvægt?