137. löggjafarþing — 18. fundur,  11. júní 2009.

nauðsynlegar aðgerðir vegna alvarlegs ástands efnahagsmála.

88. mál
[12:30]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra lét að því liggja fyrr í dag að Framsóknarflokkurinn væri ekki með nein úrræði og hefði í raun mjög takmarkaða framtíðarsýn og eyddi miklum tíma í að gagnrýna ríkisstjórnina. Það er ekki að ósekju vegna þess að í febrúarmánuði lagði þingflokkur Framsóknar fram efnahagstillögur í 18 liðum sem hæstv. ráðherra tók mjög vel í.

Nú vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju hefur nánast ekkert verið gert af því sem við í þingflokki Framsóknarflokksins lögðum fram í febrúarmánuði? Ég spyr ráðherrann: Hefur lífeyrissjóðum verið veitt heimild til gjaldeyrisviðskipta? Hefur verið lokið við stofnun nýju bankanna? Hafa kröfuhafar fengið hlut í bönkunum? Hafa verið gerð drög að fjárlögum til ársins 2012? Hefur verið komið á fót samráðsvettvangi með útflutningsfyrirtækjum og atvinnugreinum? Ég gæti haldið áfram þessari upptalningu.

Því miður einkennist starf núverandi ríkisstjórnar, eða aðgerðaleysi, af því að vandanum er alltaf frestað. Núna stöndum við í júnímánuði með margra mánaða gamlar efnahagstillögur Framsóknarflokksins og horfumst í augu við það að nánast ekkert hefur verið gert af hæstv. ríkisstjórn til að koma þeim tillögum í framkvæmd (Forseti hringir.) þó að hæstv. ráðherra hafi í febrúarmánuði lýst yfir miklum (Forseti hringir.) stuðningi við margar þeirra.