nauðsynlegar aðgerðir vegna alvarlegs ástands efnahagsmála.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Johnsen fyrir ræðu hans en það var eitt efnisatriði sem hann kom inn á sem ég ætlaði að bregðast við, þegar hann segir að þetta séu tímamót, að það séu nýmæli í þingstörfum að stjórnarandstaða komi með ítarlegar tillögur í efnahagsmálum af þessu tagi. Í fljótu bragði mundi ég eftir a.m.k. tveimur þingmálum sem þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa flutt á undanförnum árum. Á 133. löggjafarþingi, 2006–2007, var flutt þingsályktunartillaga um aðgerðir til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika sem allur þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á því þingi flutti. Þar var lagt til að fela ríkisstjórninni að grípa til ýmissa aðgerða til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika. Og á 135. löggjafarþingi, 2007–2008, flutti allur þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs frumvarp til laga um ráðstafanir í efnahagsmálum. Við höfðum á þeim tíma gert okkur grein fyrir hvert stefndi í efnahagsmálum þjóðarinnar og lögðum þess vegna ríkt á um að gripið yrði til aðgerða af hálfu stjórnvalda. Það eru því fordæmi fyrir því að stjórnarandstaða flytji þingmál, þingsályktunartillögu eða frumvörp í þessu efni.
Það sem kann kannski að vera nýtt núna er að sitjandi ríkisstjórn hlusti á það sem stjórnarandstaðan hefur fram að færa og hér gerist það að þingmál Sjálfstæðisflokksins hefur verið tekið til umræðu örfáum sólarhringum eftir að því er dreift. Í tilvikum þingmála okkar, Vinstri grænna, fengum við ekki að mæla fyrir fyrra málinu sem ég nefndi, 14. þingmáli, og hitt málið kom til 1. umr., var vísað til nefndar og sofnaði þar. Nýmælin núna kunna kannski fyrst og fremst að felast í viðbrögðum stjórnarþingmanna. Ég get ekki betur heyrt en almennt hafi þessu þingmáli verið tekið vel þótt menn áskilji sér allan rétt til að hafa skoðanir á einstökum atriðum í þeirri tillögugerð.