ESB-aðild.
Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur áður reynt að fullvissa mig um ákveðin atriði sem síðan hafa ekki verið nema hálfsannleikur í það minnsta. Það er haft eftir þessum fundi að Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, segi það skemmtilega tilviljun að Íslendingar sæki um aðild á meðan Svíar gegni formennsku í ráðherraráðinu í júlí og það sé enn þá skemmtilegra að aðildarumsóknarferlið verði jafnvel klárað þegar ráðherraráðið verði undir stjórn Dana 2012.
Misskilja forsætisráðherrar Norðurlandanna eitthvað hvar málið er statt hér á landi? Er einhver misskilningur þarna í gangi? Eða er málið komið lengra en þingið er upplýst um? Er gengið svo út frá því að við séum á leiðinni í Evrópusambandið án þess að þing eða þjóð komi að því máli? Hvernig má svona misskilningur eiga sér stað?