137. löggjafarþing — 19. fundur,  15. júní 2009.

framlagning mála ríkisstjórnarinnar, dagskrá þingsins o.fl.

[15:43]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Bhr):

Frú forseti. Mig langaði bara að athuga hvort það væri möguleiki á að þú mundir beita þér fyrir því að við fengjum öll gögn varðandi Icesave sem kallað hefur verið eftir. Við óskum eindregið eftir því að fá að sjá þennan samning og við óskum eindregið eftir því að fá alvöruyfirlit yfir eignasafnið en ekki þann brandara sem lagður var fyrir okkur í utanríkismálanefnd. Ég óska eindregið eftir því að þú beitir þér fyrir því fyrir okkur.