137. löggjafarþing — 19. fundur,  15. júní 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[16:46]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil láta þá sjómenn sem ætla að taka þátt í þessari tilraun njóta vafans, ég treysti á skynsemi þeirra. Ég treysti á að þeir reikni þetta út og skoði þetta hver fyrir sig og ég treysti því að sjómenn okkar vítt og breitt um landið séu það skynsamir að þeir fari ekki út í slíka útgerð nema þeir telji rekstrargrundvöll fyrir því.

Síðan verður bara að koma í ljós hvort þetta er eitthvað sem við getum haldið áfram með í framhaldi af því að við ætlum að breyta fiskveiðilöggjöfinni til framtíðar eða hvort þetta er eitthvað sem er óraunhæft. Það verður bara að koma í ljós. En ef við tækjum aldrei neina áhættu þá gerðist nú ósköp lítið í þessum sjávarbyggðum.