137. löggjafarþing — 19. fundur,  15. júní 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[17:05]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vona að ekki hafi verið hægt að skilja mál mitt þannig að ég hafi talað um að fulltrúum sjávarjarða hafi verið meinaður aðgangur en hins vegar er það alveg rétt að bréf frá þeim barst eftir að málið var komið úr nefnd. Í bréfi þeirra eru álitaefni sem ég tel að nefndin hefði átt að fjalla um og þess vegna tók ég þetta mál upp.

Varðandi Landhelgisgæsluna var það mat meiri hlutans að ekki þyrfti að kalla hana til. En í skriflegri umsögn Landhelgisgæslunnar kom m.a. fram að varðandi þessar strandveiðar mundi hugsanlega hljótast kostnaðarauki hjá Landhelgisgæslunni. Í ljósi erfiðrar stöðu Landhelgisgæslunnar, sem hefur margítrekað verið óskað eftir umræðu um hér í þinginu, hefði í sjálfu sér verið áhugavert fyrir okkur að ræða það mál líka en ekki síður öryggissjónarmið. Ég tek undir með formanni nefndarinnar að um það sé alltaf nauðsynlegt og áhugavert að ræða, ekki síst fyrir okkur þegar við fjöllum um breytingar á atvinnuvegunum, hvernig þeir vinna og hvernig eftirlit þarf að hafa með þeim.