stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Eins og ég rakti við 1. umr. málsins er þetta ekki í fyrsta skipti sem við reynum að setjast niður við það að finna lausnir til að koma til móts við þarfir þeirra byggða sem hafa orðið illa úti í fiskveiðistjórninni og af ýmsum öðrum ástæðum. Það hefur auðvitað verið gert með margvíslegum hætti eins og ég rakti við 1. umr. þessa máls.
Einn yfirlýstur tilgangur þess frumvarps sem hér liggur fyrir er að styrkja byggðirnar. Þá vekjum við athygli á því að þannig hefur til tekist við stefnumótun þessa frumvarps að þar er gert ráð fyrir því að taka aflaheimildir, helminginn af byggðakvótanum og rúmlega það, frá þeim byggðarlögum þar sem verst stendur á, þar sem menn hafa mest misst frá sér af aflaheimildum og þar sem fiskvinnsla hefur dregist saman, þar sem búsetan á undir högg að sækja. Við sem reynum að horfa á þessi mál gagnrýnum augum veltum fyrir okkur hvort ekki mætti nálgast það með einhverjum öðrum hætti og höfum þess vegna hvatt til þess að við reynum að vanda okkur dálítið við þetta.
Ég hef litið þannig á að meiri hluti sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar hafi gert sér grein fyrir vanköntunum á þessu frumvarpi og það kemur í rauninni alveg fram í nefndaráliti meiri hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar að hann hefur áhyggjur af þessum þætti málsins en í stað þess að takast á við það að reyna að sníða vankantana af, sem m.a. hljótast af því fyrirkomulagi sem er við svæðaskiptinguna, er frumvarpinu meira og minna vísað blankó til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
Þess vegna spyr ég hv. þingmann sem er að reyna að brýna okkur, aðra þingmenn, í að standa okkur vel varðandi byggðaþátt sjávarútvegsmálanna, hvaða hugmyndir hann hafi um það hvernig þessi svæðaskipting eigi að vera. Er hann þá þeirrar skoðunar að það eigi að minnka þessi svæði, fjölga þeim, hvort það eigi að leggja til grundvallar það sem ég nefndi þjónustusvæði, atvinnusvæði eða þess háttar. Það væri fróðlegt fyrir framvindu málsins að heyra þau (Forseti hringir.) sjónarmið frá fulltrúa meiri hlutans í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.