stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Hvers vegna er verið að flytja þetta frumvarp núna um frjálsar handfæraveiðar og strandveiðar við landið? Það er vegna þess að það er ördeyða í atvinnulífi. Það er vegna þess að það hefur verið lokun í núverandi fiskveiðistjórnarkerfi, lítil nýliðun og lítið við að vera fyrir þá sem vilja sækja á fiskimiðin. Það er náttúrlega ástæðan fyrir því að þetta frumvarp er lagt fram.
Reynsluna verðum við síðan að meta. Ég ætla ekki að fara með spádóma um hvað muni hljótast af þeirri tilraun sem hér verður gerð. Ég bind hins vegar miklar vonir við hana og vona að það verði ekki þörf á miklum breytingum á þessu fyrirkomulagi þegar upp verður staðið. En ég ætla ekki að fara með spádóma og ég treysti því að þeir sem standa að þessu frumvarpi og Alþingi Íslendinga þar með, eftir að það hefur komið til umfjöllunar, séu síðan tilbúnir að sníða af vankantana á þessu kerfi komi þeir í ljós.