störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég var að horfa á fréttir í gærkvöldi eins og eflaust mörg ykkar og sá þá mér til ánægju Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi formann Framsóknarflokksins, gráan fyrir hærum austur á Héraði þar sem hann ræddi m.a. við fréttamenn um lærdóminn af einkavæðingu bankanna. Hann taldi að hún hefði í sjálfu sér heppnast þokkalega, einhverra hluta vegna komst hann að þeirri niðurstöðu. En ég hjó reyndar eftir því að hann taldi í ljósi síðari tíma efnahagshruns hefðu Íslendingar betur skilað sér inn í Evrópusambandið og taldi það einhver mestu mistök stjórnvalda og íslenskra stjórnmála á síðustu mánuðum og missirum að Íslendingar hefðu ekki gengið einmitt inn í ESB. Væntanlega á hann við að staðan væri þá betri fyrir vikið í þeim hremmingum sem blasa við okkur Íslendingum núna.
Mér skilst að nafni minn og hv. þingmaður, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sé búinn með sinn tíma. Því beini ég þeirri spurningu til hv. þingflokksformanns Framsóknarflokksins: Er hann að þessu leyti sammála Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi formanni Framsóknarflokksins og forsætisráðherra, um að við Íslendingar værum betur komnir innan ESB í stöðunni í dag? Eða er fyrrverandi formaður á algjörum villigötum?