störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við lifum á miklum óvissutímum og það er niðurskurður fram undan hjá ríki og sveitarfélögum. Það þarf hugrakka stjórnmálamenn til að þora að taka upp hnífinn, skera niður og forgangsraða þannig að við náum að standa vörð um þá grunnþjónustu sem er nauðsynlegt að halda uppi. Þar er mjög mikilvægt að halda uppi grunnskólum landsins, framhaldsskólum landsins og háskólum. Við sem sitjum í menntamálanefnd af hálfu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks höfum óskað eftir því að á fundum nefndarinnar verði fjallað um stöðu sveitarfélaganna vegna þess að þar blasir við mikill niðurskurður og sveitarfélögin hafa lagt fram ákveðnar tillögur um það hvernig honum verði mætt. Af slíkum fundi hefur ekki orðið. Fulltrúar sveitarfélaganna hafa ekki enn komið á fund nefndarinnar. Í morgun var fundarfall í nefndinni, þannig að það væri ágætt ef formaður menntamálanefndar gæti svarað þeirri spurningu hvenær þessi umræða fari fram í nefndinni og hver sé skýringin á því að fundur féll niður í morgun.