137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

íslenska undanþáguákvæðið.

41. mál
[14:44]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Vigdís Hauksdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Upphafleg fyrirspurn mín til hæstv. umhverfisráðherra verður að taka breytingum í dag þar sem langt er um liðið síðan ég lagði þessa fyrirspurn fram og ekki hefur reynst unnt að koma henni á dagskrá Alþingis fyrr en nú.

Upphaflega hljóðaði fyrirspurnin svo:

„Hyggst ráðherra beita öllum tiltækum ráðum til að viðhalda íslenska undanþáguákvæðinu við Kyoto-bókunina á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í lok árs?“

Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að gefa íslenska ákvæðið eftir og hyggst ekki sækja þar rétt Íslands og viðhalda íslenska ákvæðinu samkvæmt fréttum sem bárust nú fyrir skömmu.

Á þeim fimm árum sem Kyoto-bókunin gildir, frá árinu 2008 til loka árs 2012, var Íslendingum leyft að auka losun um 10% miðað við árið 1990. Var það sanngjörn og eðlileg krafa þar sem hér er notuð endurnýjanleg orka til hitunar og rafmagnsframleiðslu en ekki mengandi jarðefnaeldsneyti. Síðast en ekki síst var þessi undanþága veitt vegna smæðar efnahagskerfisins hér á landi.

Með því að ná því í gegn áttu Íslendingar að undirrita ákvæði Kyoto-bókunarinnar og fullnægja skuldbindingum hennar. Sýndu samningsaðilar Íslands mikið hugrekki, dug og þor þegar þeir náðu þessu ákvæði í gegn á sínum tíma. Meira að segja fannst núverandi hæstv. utanríkisráðherra samningsstaðan vera svo vonlaus að hann talaði um að samningsaðilar mundu hlæja kröfur Íslendinga út af borðinu. Kunnugleg uppgjöf, frú forseti.

Við gildistöku laga 65/2007, um losun gróðurhúsalofttegunda, var komið á stýringu varðandi nýtingu losunarheimilda. Markmið laganna var að skapa skilyrði fyrir stjórnvöld til að standa við alþjóðlegar skuldbindingar um losun. Við útfærslu laganna voru afnotahafar valdir og réttmæti þeirra skilgreint og í leiðinni fengu fyrirtækin takmarkaða auðlind í hendur, alheimsauðlind um stundarsakir í það minnsta og án þess að greiða endurgjald fyrir notkunina. Íslenska ákvæðið telur 8 milljónir losunarheimilda og eru þær ekki framseljanlegar samkvæmt lögum en ekki er þar með sagt að ekki megi leigja þær til stóriðju. Mengunarreynsla okkar Íslendinga á viðmiðunarárunum færði okkur 2,5 milljónir losunarheimilda. Þær mega ganga kaupum og sölum. Við úthlutun þessara heimilda hefur ásókn í þær verið miklu meiri en hægt er að ráðstafa. Stafar það af því að um takmarkaða auðlind er að ræða, takmarkaða alheimsauðlind.

Nú bregður svo við að þessi vinstri græna velferðarríkisstjórn, eins og hæstv. fjármálaráðherra kýs sjálfur að kalla hana, ætlar ekki að berjast fyrir loftslagsheimildum Íslands á alþjóðavísu. Vinstri grænir líta á loftslagsheimild sem ávísun á álver. Það er þröngsýni og heimóttargangur. Því spyr ég hæstv. umhverfisráðherra: Hyggst hún skipta um skoðun í þessum málum og beita öllum tiltækum ráðum til að viðhalda íslenska undanþáguákvæðinu við Kyoto-bókunina á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í lok ársins?