137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

undirbúningur að innköllun veiðiheimilda.

6. mál
[15:07]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Hv. þm. Róbert Marshall hefur beint til mín fyrirspurn um hvað líði framkvæmd atriða í stjórnarsáttmálanum og þar eru tilgreindar sérstaklega innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda.

Ég vil í þessu sambandi minna á að kaflinn um fiskveiðar er allítarlegur í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar þar sem fjallað er um ýmsa mikilvæga þætti.

Í upphafi kaflans stendur, með leyfi forseta:

„Markmið sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar er að fiskveiðar umhverfis landið séu hagkvæmar og skapi verðmæti og störf en séu jafnframt sjálfbærar og vistvænar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um verndun vistkerfa, lífríkis og hafsbotns. Veiðiheimildir skulu ákvarðast af nýtingarstefnu sem byggist á aflareglu hverju sinni. Íslenskur sjávarútvegur mun gegna lykilhlutverki við þá endurreisn atvinnulífsins sem fram undan er. Það er því afar mikilvægt að skapa greininni bestu rekstrarskilyrði sem völ er á og treysta þannig rekstrargrundvöllinn til langs tíma, en jafnframt verði leitað sátta um stjórn fiskveiða.“

Eins og fram kom í máli hv. þingmanns eru í stefnuyfirlýsingunni áfram tilgreind brýn atriði sem taka ber á. Knýja þarf á um frekari fullvinnslu afla hérlendis, takmarka framsal á aflaheimildum, vernda grunnslóð, skipa ráðgefandi hóp útgerðarmanna og sjómanna um veiðiráðgjöf og heimila frjálsar handfæraveiðar smábáta yfir sumarmánuðina.

Þetta eru þau atriði sem gert er ráð fyrir að ráðuneytið hafi þegar bein afskipti af og nokkur atriði eru einmitt þegar komin til framkvæmda en vonandi verður frumvarp um frjálsar handfæraveiðar samþykkt hér seinna í dag.

Síðan er það endurskoðun laga um fiskveiðar eins og hv. þingmaður minntist á. Þar eru tínd upp ýmis fleiri atriði sem taka þarf tillit til, stuðla að verndun fiskstofna, stuðla að hagkvæmri nýtingu auðlinda sjávar, treysta atvinnu, efla byggð í landinu, skapa sátt meðal þjóðarinnar um eignarhald og nýtingu auðlindar sinnar og leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í samræmi við stefnu beggja flokka. Þessi endurskoðun verður unnin í samráði við hagsmunaaðila í sjávarútvegi og miðað við að áætlun um innköllun og endurráðstöfun geti tekið gildi í upphafi fiskveiðiárs 1. september 2010 eins og hv. þingmaður minntist á.

Í framhaldi af þessu hef ég einmitt skipað starfshóp til þess að fara yfir og skilgreina helstu álitaefni sem fyrir hendi eru í fiskveiðistjórninni eins og ég lýsti hér að framan og lýsa þeim. Hópurinn er látinn vinna nauðsynlegar greiningar og setja að því loknu fram valkosti um leiðir til úrbóta þannig að greininni séu sköpuð góð rekstrarskilyrði til langs tíma en jafnframt að sátt náist um stjórn fiskveiða. Starfshópnum er gert að hafa sem víðtækast samráð við aðila, t.d. með viðtölum, viðtöku álitsgerða og á veraldarvefnum. Honum er gert að skila af sér álitsgerð fyrir 1. nóvember nk. Á grundvelli vinnu starfshópsins og þeirra valkosta sem hann bendir á mun ráðherra ákveða frekari tilhögun við endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar og að sjálfsögðu í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, eins og ég hef hér greint frá.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er einmitt lögð mikil áhersla á samráð og samstarf við alla þá aðila sem geta tengst málinu. Í þeim hópi, sem ég get komið að í seinni ræðu minni, eiga fulltrúa allir stjórnmálaflokkar á Alþingi og einnig allmargir sem eiga bein tengsl að sjávarútvegi. Ég legg áherslu á að hópurinn vinni af mikilli ábyrgð og geri sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem á hann er lögð. Sjávarútvegurinn er einn mikilvægasti atvinnuvegur þjóðarinnar, hann verður að stunda í sátt við þjóðina alla. Hann verður einnig að standa undir atvinnu og byggð vítt og breitt um landið. Við verðum að umgangast fiskstofnana okkar á sjálfbæran hátt og við þurfum einnig að tryggja að sjávarútvegurinn sé stundaður á þann hátt að hann skapi sem mestan þjóðhagslegan ábata innan lands. Ég treysti þessum hópi til að vinna (Forseti hringir.) á þessum grundvelli eins og ég hef hér greint, (Forseti hringir.) frú forseti, og vænti góðs af störfum hans.