137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

undirbúningur að innköllun veiðiheimilda.

6. mál
[15:17]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda og hæstv. ráðherra fyrir góð svör og þá áherslu sem hann lagði á það að skapa sátt um sjávarútveginn. Yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar, um 85%, er algerlega ósáttur við þá skipan sem verið hefur og stórir hópar þjóðarinnar telja þessa skipan vera mesta rán Íslands. Þess vegna er mikilvægt að stjórnarflokkarnir hafa ákveðið að innkalla aflaheimildir í samræmi við samhljóða stefnu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar í þeim efnum og ráðherrann vinnur nú að útfærslunni.

Við teljum hins vegar mjög mikilvægt að sjávarútvegurinn þurfi ekki að búa við óvissu og þess vegna settum við í stjórnarsáttmálann að þetta þyrfti að hefjast 1. september á næsta ári sem þýðir, eins og hv. fyrirspyrjandi benti réttilega á, að málið þarf að koma inn í þingið á næsta vetri. Sjávarútvegurinn má ekki búa við meiri óvissu um rekstrarskilyrði sín en nú er, en það verður líka að minna þá á sem halda því fram að sjávarútvegurinn þoli engar byrðar (Forseti hringir.) að hann hefur á síðustu árum, að því er virðist, getað tekið að sér alls kyns útgjöld og alls kyns fjárfestingar án þess að kveinka sér undan því (Forseti hringir.) og ætti þess vegna að geta skilað eðlilegu afgjaldi í sameiginlega sjóði þjóðarinnar.