hvalveiðar.
Virðulegi forseti. Ég lagði þessa fyrirspurn fram fyrir nokkru síðan til hæstv. sjávarútvegsráðherra og ástæðan er sú að möguleikar á hvalveiðum og hvalveiðar er ein af þeim greinum sem Íslendingar hafa haft atvinnu af í býsna langan tíma og hefur fylgt þjóðinni mjög lengi. Persónulega hef ég talið sjálfsagt að nýta þessar afurðir skynsamlega eins og aðrar og ég þekki ekki hvalveiðar á Íslandi öðruvísi en að þær hafi verið gerðar með mjög ábyrgðarfullum hætti og náttúran notið vafans í því. Það er vitanlega eðlilegt að þeir sem eru í ferðaþjónustu og stunda hvalaskoðun hafi áhyggjur af þessu enda er mjög vinsælt hjá ferðamönnum að fara í slíkar ferðir.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að vel sé hægt að samræma þetta. Ég tel það í rauninni eitt af mjög mikilvægum atriðum í atvinnufrelsi okkar að geta stundað hvort tveggja. Ég hefði því talið að það væri mjög mikilvægt að sjónarmið Íslendinga, þ.e. að hvalveiðar séu stundaðar með sjálfbærum hætti, séu kynnt vel erlendis, kynnt þeim ferðamönnum sem hingað koma og kynnt í þeim ríkjum þar sem eru uppi efasemdir um að hvalveiðar séu skynsamlegar yfirleitt.
Því ber ég fram fyrirspurn til hæstv. ráðherra sem hljóðar svo:
Hvernig hyggst ráðuneytið kynna á alþjóðavettvangi áherslur Íslands í sjálfbærum veiðum á hval, nú þegar veiðitímabilið er að hefjast?
Ég tel mjög mikilvægt að fá upplýsingar um hvort ráðuneytið hyggist beita sér fyrir sérstakri kynningu með einhverjum hætti og hvernig verði þá að því staðið.
Í framhaldinu finnst mér rökrétt að spyrja hvort ráðherra styðji áframhaldandi hvalveiðar í atvinnuskyni. Þá er ég vitanlega að vísa til þess að sá stuðningur muni væntanlega byggja á því að við séum að gera þetta með ábyrgum hætti og að veiðarnar séu sjálfbærar. Ég ætlast ekki til að hæstv. ráðherra lýsi neinu öðru yfir hér.
En mér þætti gaman og forvitnilegt að fá að vita hvernig og hvort farið hafi verið í eitthvert sérstakt átak varðandi kynningu á sjónarmiðum okkar og eins hug ráðherra til frekari hvalveiða.