137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

hvalveiðar.

64. mál
[15:38]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Nokkrar staðreyndir um hvalveiðimálið. Hvalveiðar eru stundaðar í fullkominni sátt við allar alþjóðlegar reglur um vísindasamfélagið eins og fram kom hjá hæstv. ráðherra. Viðskiptin ganga eðlilega fyrir sig þvert á það sem hafði verið spáð.

Í dag hafa hvalveiðar skapað hér vel á þriðja hundrað störf. Það er fyrir utan afleidd störf sem má reikna með að séu ansi mörg, sérstaklega núna í byrjun þegar viðhald og uppbygging á sér stað. Áhrif veiðanna og viðskiptanna á aðrar atvinnugreinar eru hverfandi og þrátt fyrir allar þær hrakspár sem þar hafa verið hafðar uppi og nú þegar við erum að fara stíga okkar stærstu skref í hvalveiðum, þegar við förum í stórveiðar á stórhveli þá þetta ekki meira en raun ber vitni. Á fundi sem mér þykir líklegt að hæstv. ráðherra hafi setið í London með fiskkaupendum á íslenskum fiski í síðustu viku var ekki einu sinni minnst á hvalveiðar Íslendinga eða fyrirhugaðar hvalveiðar.

Ég vona að núverandi ríkisstjórn takist ekki, eins og í mörgum öðrum málum, að fara að setja einhverja þröskulda við eðlilega í atvinnustarfsemi í landinu. Það er erfitt að (Forseti hringir.) sjá fyrir afleiðingar þess sem er að gerast núna í sjávarútvegsmálum (Forseti hringir.) og hvalveiðarnar eru þar engin undantekning.