137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

breytingar á raforkulögum.

75. mál
[17:39]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Hér talaði hæstv. ráðherra iðnaðarmála um atvinnumál og þá miklu tengingu sem er á milli orkuöflunar og atvinnustarfsemi í landinu eins og við hefðum bara nægan tíma. Við hefðum allan tímann í heiminum til þess að reyna að skapa hér öflugt atvinnulíf á grunni þeirra gæða sem landið býður upp á.

Staðreyndin er sú að undir forustu Samfylkingarinnar hefur helst verið unnið að því að standa í vegi fyrir því að hér geti farið af stað öflug atvinnustarfsemi. Setja þröskulda við gerð umhverfismats og svo langt gekk það að meira að segja að ASÍ ályktaði á ársþingi sínu að það yrði að fara að einfalda þær leiðir sem unnið væri eftir til þess að geta eflt íslenskt atvinnulíf með eðlilegum hætti.

Ég skora á þessa flokka, vinstri flokkana, sem lítið annað hafa sýnt (Forseti hringir.) okkur í þessum hremmingum en að hér séu á ferðinni skattahækkanir, (Forseti hringir.) ég skora á þá að fara nú að setja einhverjar sprautur í þessi mál af fullri alvöru, (Forseti hringir.) annað en einhver nefndarstörf sem eru til þess fallin að tefja þessi mál enn frekar.