137. löggjafarþing — 20. fundur,  16. júní 2009.

þyrlusveit Landhelgisgæslunnar.

77. mál
[18:10]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör og tek undir að það voru afar heiðarleg svör. Þegar ráðherra segir að Landhelgisgæslan sé undir það búin að ákveðnu marki að bregðast við þessum niðurskurði, málin standi svona og nú sé hún búin að gera þinginu grein fyrir því að hún hafi fyllst efasemdum um þetta, spyr ég, í ljósi þess að ráðherrann er ópólitískur, ekki kjörinn: Hver ber ábyrgðina ef illa fer?

Nú er hæstv. ráðherra búinn að gera þinginu grein fyrir þessum málum. Guð forði því að eitthvert slys verði á hafi úti en ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að gera allt sem í hennar valdi stendur til að bæta þetta ástand. Mér leikur þó svolítil forvitni á að vita hvað hæstv. ráðherra ætlar að gera í þessu máli. Ég ítreka: Hver ber hina endanlegu ábyrgð?