137. löggjafarþing — 21. fundur,  16. júní 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[18:33]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Frú forseti. Ég sé ástæðu til að kveðja mér hljóðs í þeirri von, þó að veik sé, að ríkisstjórnarflokkarnir endurskoði hug sinn í þessu máli. Í sjálfu sér er ýmislegt gott í þessu frumvarpi. Það eru ágætir þættir þar sem snúa að frístundaveiðum, menntun og öðru slíku. En síðan er það sú grundvallarbreyting sem á að gera á fiskveiðistjórnarlöggjöfinni á Íslandsmiðum að taka upp opnar veiðar, þ.e. með frjálsum aðgangi, takmarka þó magn við 3.955 tonn. Ég tel að það sé skref aftur á bak í fiskveiðistjórnun á Íslandi og muni án vafa bæði draga úr þjóðhagslegri hagkvæmni greinarinnar og líka valda gríðarlegum vandamálum þegar fram í sækir. Ég ætla að fara í gegnum þetta og sennilega þá í síðasta sinn áður en þetta verður samþykkt ef stjórnarmeirihlutinn heldur fast við sitt.

Hvers vegna er þetta þjóðhagslega óhagkvæmt? Þetta er þjóðhagslega óhagkvæmt og menn þurfa að spyrja sig: Ef þetta frumvarp verður að lögum mun það leiða til þess að þessi kvóti eða þ.e. þetta magn, þessi 3.955 tonn, verði sótt með fleiri bátum eða færri en annars hefði orðið? Það er alveg augljóst mál, og menn þurfa ekki að hafa grandskoðað sögu sjávarútvegs á Íslandi síðustu áratugina til að átta sig á því, að með því að opna fyrir þessar veiðar með þessum hætti mun bátunum sem munu sækja þessi 3.955 tonn að sjálfsögðu fjölga. Það er augljóst. Það er ekki hægt, tel ég, að færa fyrir því rök að þeir verði færri eða jafnmargir. Hvað þýðir það ef bátunum fjölgar sem mega sækja þessi tonn? Hvaða afleiðingar hefur það í þjóðhagslegu samhengi? Það þýðir að sóknarkostnaðurinn við að ná í þessa fiska verður meiri og þar með verður þjóðhagsleg hagkvæmni sjávarútvegsins minni. Það er staðreynd sem er óhrekjanleg þannig að þetta er vont fyrir íslenskt þjóðarbú. En þá spyrja menn: Er þetta gott fyrir einhverja einstaklinga, einhverja þá sem ekki eru að sækja sjóinn núna en sjá sér tækifæri til að gera það með þessu fyrirkomulagi? Svarið við því er nei. Þetta er ekki gott fyrirkomulag og reynslan er mjög harður og ólyginn kennari í þessu máli. Hvað mun gerast? Það sama mun gerast og gerðist þegar við vorum með dagakerfið, þegar aðgangur var á sínum tíma opinn sem síðan var reyndar lokað af, það sama og gerðist í skrapdagakerfinu á sínum tíma, og þetta mun gerast með eftirfarandi hætti:

Fyrsta sumarið, þ.e. þetta sumar núna, mun ekki verða nein stór fjölgun á þessum bátum. Það tekur tíma að gera báta hæfa til veiða. Menn þurfa að útvega sér báta o.s.frv. þannig að fyrsta sumarið, þar sem hver bátur má veiða 800 kíló á dag, munum við svo sem ekki sjá neinar stórar breytingar en það verða þó fleiri bátar sem munu verða á sjó. Síðan mun það gerast næsta sumar — þegar menn sjá þann hagnað sem varð hjá þeim sem gátu með þessum hætti komið inn í greinina þá munu auðvitað fleiri nýta sér það án nokkurs vafa. Nægur er viljinn og næg er kunnáttan og næg er getan. Hvað gerist þá? Þá gerist það einfaldlega að það klárast fyrr sem má veiða á hverju svæði sem sjávarútvegsráðherra er búinn að skipta landinu upp í þar sem hvert svæði hefur ákveðið magn sem má veiða í hverjum mánuði — eftir því sem bátarnir eru fleiri því fyrr er það sem sjávarútvegsráðherrann hringir bjöllunni og segir: Nú verðum við að hætta veiðunum. Þannig mun það ganga koll af kolli, bátunum mun fjölga, dögunum í hverjum mánuði sem má nýta þá mun fækka, dögunum þar sem þeir liggja við bryggju ónotaðir mun fjölga þangað til hagnaður í veiðunum er algerlega horfinn, þangað til allir eru farnir að tapa. Þeir sem leggja út í þessar fjárfestingar, af því að því hefur verið haldið fram í sölum þingsins af þeim hv. þingmönnum sem telja að þetta frumvarp sé vonarglæta fyrir sjávarbyggðir landsins — ef menn láta blekkjast af því hafa þeir ekkert lært af því sem gerðist einmitt í þessu sama kerfi þegar menn hafa gert sömu tegundir af tilraunum, nákvæmlega ekki neitt. (Gripið fram í: ... kvóta.) Það var nákvæmlega það sem gerðist, það var lokað og ef menn eru að fara í þetta sem einhvers konar tæki til að snuða kerfið enn einu sinni, gott og vel. (Gripið fram í: Koma þeim inn sem voru settir út.) Það er rétt sem hv. þingmaður bendir á, þeir verða komnir fyrstir inn sem seldu kvóta sem þeir höfðu á smábátana sína, áttu bátana áfram og fara nú aftur inn. Og hvert er nú réttlætið við það? En það er þetta sem mun gerast.

Að sjálfsögðu verður sú krafa uppi þegar fram líða stundir, af hálfu þeirra sem stunda þessar veiðar, þegar sjávarútvegsráðherrann kemur og segir: Nú er nauðsynlegt að hætta veiðum, nú er búið að klára þann þorsk sem ætlaður var fyrir þetta svæði. Haldið þið, hv. þingmenn og virðulegi forseti, að það verði þannig að menn muni sitja þegjandi og hljóðalausir hjá þegar þeim verður sagt að fara í land með bátana sína og bíða næstu 20 dagana af því að kvótinn kláraðist á fyrstu 10? Nei, það verður uppi gríðarleg krafa um það að auka veiðiheimildirnar fyrir þessa báta til að þeir geti haldið áfram að nýta þá. Innan skamms tíma verður gripið til þess ráðs að loka þessu. Það er það sem mun gerast. Það hefur gerst áður, það hefur gerst í öllum þeim tilvikum þar sem við höfum farið svipaða leið. Þegar búið er að loka fá þeir sem fóru inn réttindi sem þeir munu síðan væntanlega geta selt, fénýtt, farið aftur út og beðið eftir því að Alþingi Íslendinga verði svo vitlaust aftur að fara annan hring í málinu. Það er mjög alvarlegt.

Ég verð að segja eins og er og mér líður þannig, frú forseti, eins og allt minni og öll kunnátta í þessu máli hafi einhvern veginn þurrkast út í þessum sölum, að menn trúi því virkilega að þetta sé hægt. Menn eru tilbúnir til að horfa fram hjá allri þeirri sögu og allri þeirri reynslu sem við höfum af fiskveiðum á Íslandsmiðum og tilraunum okkar til að stjórna því. Menn vita nákvæmlega, frú forseti, hvaða afleiðingar þetta mun hafa. Það þarf ekki að gera neina tilraun í þessu máli. Enda er furðulegt að tala um tilraunastarfsemi í íslenskum sjávarútvegi á þessum tíma. En það er eins og menn haldi einhvern veginn að það komi eitthvað allt annað út úr þessari tilraun en öllum öðrum tilraunum sem menn hafa gert með nákvæmlega sömu aðferðum, með nákvæmlega sömu hugmyndum og það er alveg furðulegt á að hlýða. Ég held að það væri nær fyrir Alþingi Íslendinga að einbeita sér að því að búa íslenskum sjávarútvegi það rekstrarumhverfi sem er hvað öruggast og stöðugast til að sjávarútvegurinn geti orðið sú aflvél sem hann á að vera í því að keyra okkur út úr þeim efnahagsvanda sem nú er uppi.

Ofan á þetta furðulega frumvarp ætlar ríkisstjórnin sér, og hefur lýst því yfir að hún hyggist gera það, að fyrna aflaheimildir íslenskra útgerða um 5% á hverju einasta ári bótalaust. Það hangir ofan á og til viðbótar við þetta system sem hér á að koma saman. Ég verð að segja eins og er að það er ómögulegt að átta sig á því hvað vakir fyrir hv. þingmönnum. Ef þetta er hugmynd um eitthvert sérstakt réttlæti þá mun það réttlæti fara fyrir lítið þegar menn munu neyðast til að loka þessu aftur, og það mun gerast fyrr en varir. Þá verða til ný réttindi einmitt fyrir þá sem fóru inn og það eru sérstaklega þeir sem voru búnir að selja kvóta sinn áður, áttu áfram bátana og fá þá kvóta aftur úthlutað. Hvers lags réttlæti er þetta?

Ég geri mér, frú forseti, svo sem engar stórar grillur um það að ríkisstjórnin muni snúa af þessari óheillabraut. En þetta er mín spá. Þetta er það sem ég tel að muni ganga fram á næstu sumrum, næstu árum. Við munum horfa til baka til þessarar umræðu og velta því fyrir okkur hvernig á því stóð að við tókum ákvörðun á Alþingi um að horfa algerlega fram hjá þeirri reynslu sem við Íslendingar höfum í þessum málum. Það er alvarlegt mál.

Ég vil líka taka það fram að afstaða mín til þessa máls byggist á ákveðnum grundvallarsjónarmiðum en hún er ekki byggð á því, eins og mátti skilja af athugasemdum sumra hv. þingmanna sem komu fram við 2. umr. þessa máls, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins standi einhverja sérstaka varðstöðu fyrir stórútgerð í landinu, eða menn geti ekki hugsað sér neinar breytingar á núverandi kerfi. Þannig er það ekki. Þetta er ekki fullkomið kerfi sem við búum við. En það eru ákveðin grundvallarsjónarmið, sem snúa m.a. að réttlætinu, sem snúa að möguleikum íslensku þjóðarinnar til að nýta þessa grundvallarauðlind — það eru slík sjónarmið sem menn hlaupa ekki frá.

Ég hef lýst því yfir, og geri enn og aftur, að ég tel mikla þörf á því að við skoðum kvótakerfið og samspil þess við líffræðilegu ráðgjöfina til að við getum unnið okkur hraðar upp með þorskstofnana, þ.e. að við bætum fiskveiðiráðgjöfina og rannsökum betur og skiljum betur samhengið á milli fiskveiðiráðgjafarinnar annars vegar og aflamarkskerfisins hins vegar. Það er mjög mikilvægt. Það getur leitt til þess að heildarafli á Íslandsmiðum eykst. En hugmyndir eins og sú sem hér liggur fyrir, þar sem sama afla á að sækja á fleiri skipum með meiri sóknarkostnaði, minni hagnaði fyrir greinina, þar af leiðandi minni þjóðhagslegum hagnaði — við hljótum að hafna slíkum hugmyndum. Þær eru ekki í rétta átt fyrir íslenskt samfélag, ég tala ekki um þegar svo illa árar eins og nú gerir og sjávarútvegurinn er jafnmikilvægur og hann er um þessar mundir.

Ég sé að hér gengur inn í salinn hæstv. sjávarútvegsráðherra og ég skora á hann að skoða þetta mál, íhuga það vel, læra af reynslunni, sjá hvaða mistök ýmsir forverar hans í embætti gerðu hvað þetta varðar og endurtaka þau ekki heldur gerast úrræðagóður og tillögugóður sjávarútvegsráðherra og falla frá þessu, sjá hvort ekki séu til aðrar leiðir til að ná þeim markmiðum sem hann er alveg örugglega, hæstv. ráðherra, að leita að, sem er að styrkja hinar veikari byggðir landsins, aðra leið en þá sem svo augljóslega veikir þær þegar upp verður staðið. Hverjum dettur í hug að það sé til styrktar byggðunum í landinu að auka útgerðarkostnaðinn? Hverjum dettur það í hug? Ég veit að hæstv. sjávarútvegsráðherra dettur það ekki í hug. Ég hef það á tilfinningunni að þessi hugmynd hafi orðið til einhvers staðar í kosningabaráttu, einhvers staðar á fundi óhugsuð og óútfærð og nú vilji menn framkvæma hana á þinginu í sumar til að fara af stað, eins og hefur verið ítrekað sagt af hálfu stjórnarliða, og gera tilraun með þessi mál. Tilraunin hefur þegar verið gerð, hæstv. sjávarútvegsráðherra, hún hefur verið gerð oftar en einu sinni. Niðurstaðan er alveg ljós. Er ástæða til þess, frú forseti, að endurtaka enn á ný sömu mistök?