137. löggjafarþing — 21. fundur,  16. júní 2009.

stjórn fiskveiða.

34. mál
[18:47]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Jón Bjarnason) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykir hv. þm. Illugi Gunnarsson taka ansi stórt upp í sig — ef ég má orða það svo, frú forseti, fyrirgefðu orðbragðið en þetta er nú góð íslenska — með því að útmála áform um strandveiðar með hrakspám.

Ég tel að hér sé verið að stíga mjög mikilvægt skref með því að opna almenningi leið, að þeir sem vilja stunda sjó, vítt og breitt um landið geti gert það án þess að þurfa að kaupa til sín kvóta. Þetta er ekki svo stórt magn af heildaraflahlutdeildinni eða aflamarkinu sem er í landinu. Þannig að það ætti nú ekki setja á slig. Í haust að afloknu þessu fiskveiðiári verður skoðað hvernig til hefur tekist og metið.

Ég verð að segja að þeir þingmenn sem koma hér hver á fætur öðrum, sérstaklega frá Sjálfstæðisflokknum og vilja halda svona gjörsamlega í óbreytt kerfi, að þar megi engu hagga og engu breyta og (Gripið fram í.) hafa mörg svo stór orð um að verið sé að feta sig inn á nýja braut í þó ekki stærra mæli en hér um ræðir, mér finnst að þeir eigi að hugsa sinn gang. Ég vildi miklu frekar heyra að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins kæmu og segðu: Þetta er athyglisverð tilraun, það er mjög athyglisvert sem þarna er verið að gera. Við skulum taka þátt í henni. Við skulum vera með í að meta árangurinn og (Forseti hringir.) sjá hvort þetta er skref til heilla og hvernig megi snúa því á enn betri veg. Þannig á að mínu (Forseti hringir.) mati, frú forseti, að nálgast málið.