stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Þetta er að mörgu leyti merkilegt mál sem við erum að ræða hér. Ég talaði í 1. umr. um það og taldi þá að við værum að ræða mál sem fengi mjög vandaða og góða yfirferð hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og yrði síðan til umræðu og mönnum yrði gefinn góður tími til umræðna.
Það er dálítið merkilegt að horfa fram á það að hér erum við með annað mál sem lýtur að sjávarútveginum. Fyrst hefur verið tilkynnt um fyrningu aflaheimilda. Hér er svo komið með frumvarp þar sem í rauninni er verið að flytja fjögur lítt skyld mál saman. En á sama tíma óskar hæstv. sjávarútvegsráðherra eða ríkisstjórn eftir því að tilnefndir séu fulltrúar í að endurskoða fiskveiðistjórnina, sem er mjög gott. Enda hældi ég hæstv. ráðherra fyrr í dag fyrir að hafa óskað eftir því að tilnefnt yrði með formlegum hætti í þessa nefnd og þar á meðal hagsmunaaðilar.
En það er dálítið skrýtið að á sama tíma og talað er um samráð og samvinnu þá er verið að demba slíkum málum sem tengjast þessu beint yfir þingið. Ég hefði haldið að það væru rétt vinnubrögð að mál sem þetta yrði ekki keyrt hér í gegn núna með þessu hraði heldur yrðu þessi mál rædd í nefndinni eða vinnuhópnum, þetta heitir víst vinnuhópur, sem á að fjalla um fiskveiðistjórnarkerfið.
Það kemur m.a. fram þegar farið er yfir ferli þessa máls að þeir umsagnaraðilar sem fengu til sín erindi fengu mjög stuttan tíma. Meðal annars gerði Byggðastofnun mjög miklar athugasemdir við það að hún fékk einungis einn dag til þess að fjalla um þetta mál. Það eru í sjálfu sér vinnubrögð sem ekki eru til eftirbreytni.
Mér finnst ekki rétt hjá hæstv. ráðherra að tala um að þeir sem gagnrýna þetta frumvarp vilji halda öllu óbreyttu. Ef svo væri að við vildum halda öllu óbreyttu tækjum við ekki þátt í að endurskoða fiskveiðistjórnarkerfið eins og við höfum ákveðið að gera. Þá hefðum við einfaldlega hunsað það boð og sagt að þetta væri á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. En við höfum hins vegar sýnt það í verki að við erum tilbúin til þess að endurskoða þetta með því að tilnefna fulltrúa í þennan vinnuhóp.
Það er kallað eftir því að þingmenn nálgist þetta mál jákvætt og lagt upp úr því að menn eigi að vera víðsýnir og þora að ræða hlutina og slíkt. Það er alveg sjálfsagt að gera það og ég tek undir það. En það er mjög vandasamt að nálgast mál sem eru unnin með þessum hætti, sett fram með þessum hætti með jákvæðum huga þegar vinstri höndin ef má orða það þannig, segir: Við skulum fara og gera fjórar óskyldar breytingar á fiskveiðistjórninni. En hægri höndin boðar svo samráð og segir: Við skulum fara yfir þetta í heild. Slíkt er ekki ásættanlegt.
Það sem er samt kannski einna alvarlegast við þetta mál allt saman er að það er verið að færa veiðirétt frá veikustu sjávarbyggðum landsins. Það er eitthvað sem gengur ekki að mínu viti og ég trúi ekki að hafi verið upphaflegt markmið hæstv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Ég held að hafi hann viljað fara þessa leið þá hefði hann getað gert það með öðrum hætti, þ.e. aukið kvótann svo ekki sé verið að skerða byggðakvótann. Þau byggðarlög sem hafa fengið byggðakvóta eða hafa notið góðs af honum hefðu þá getað gert það áfram.
Það er líka varhugavert í þessu öllu saman eða svolítið sérstakt að þessi breyting býður upp á að þeir sem hafa verið gagnrýndir einna helst, það sem mest hefur verið gagnrýnt í fiskveiðistjórnarkerfinu er að menn geti selt sig út úr kerfinu, nú hafa þeir aftur tök á að kaupa sig inn í það eða sem sagt að komast inn í kerfið með því að ná sér í bát. Þeir hafa margir hverjir einna helst efni á því að kaupa sér bát og fara á veiðar og afla sér þá væntanlega veiðireynslu og eitthvað slíkt. Það er því margt sem er gagnrýnivert í þessu.
En ég ætla ekki að hafa mjög mörg orð um þetta. Þetta mál er í raun unnið þannig og sett fram með þeim hætti að það er mikill gassagangur á þessu. Á sama tíma er verið að tala um samráð og sátt og alla þá hluti.
Ég vil þó að endingu taka undir áhyggjur hv. þm. Illuga Gunnarssonar varðandi það sem hann nefndi áðan, að verið sé að taka upp og fara af stað með óhagkvæmni sem búið er að vinna mikið að að eyða í kerfinu. Ég efast ekki um að það séu leiðir til þess að breyta núverandi fiskveiðistjórnarkerfi. En ég held að það sé rangt að gera það ef það er einsýnt eða líklegt að sú breyting sem ákveðin verður leiði til þess að óhagkvæmnin í kerfinu aukist.
Að endingu vil ég enn og aftur ítreka og ég vil að það komi skýrt fram að mér þykja vinnubrögðin varðandi þetta mál ekki við hæfi í ljósi þess að hér er mikill vilji til þess að skoða málefni sjávarútvegsins frá upphafi til enda, mundi ég segja. Mér finnst ekki rétt að fara fram með málið með þessum hætti og þess vegna geri ég miklar athugasemdir við það.