stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég ætla að fara inn á mál sem er ekki akkúrat til umræðu í dag heldur áform ríkisstjórnarinnar um innköllun aflaheimilda vegna þess að þetta hefur eiginlega verið rætt jöfnum höndum í dag. Mér finnst að verið sé að eltast við menn sem eru löngu farnir út úr kerfinu þegar verið er að kvarta undan framsalinu, sem var reyndar sett á í tíð síðustu vinstri stjórnar sem hér sat og Sjálfstæðisflokkurinn, svo það komi fram, greiddi atkvæði gegn — af því að það er alltaf verið að tala um að hann sé sérstakur verndari kvóta. Mér finnst eins og menn séu alltaf að hlaupa eftir einhverju sem liðið er. Sannleikurinn er nefnilega sá að það er afskaplega sérkennilegt og mér finnst það bara ábyrgðarhluti af ríkisstjórninni við þær aðstæður sem nú eru í þjóðfélaginu, að ætla að fara að snúa þessu kerfi á haus. Það verður þannig þegar menn leggja fram þetta frumvarp um innköllun aflaheimilda að þá verður meiri háttar órói í þjóðfélaginu. Ofan á allt annað sem yfir okkur hefur gengið, ofan á þau ósköp sem við stöndum frammi fyrir núna í ríkisfjármálum ætlum við að fara að rugga þeirri atvinnugrein sem er að skapa okkur mikilvægar gjaldeyristekjur um þessar mundir, nokkuð sem okkur veitir ekki af að gæta að. Mér finnst þessi áform ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum afskaplega varhugaverð svo ekki sé meira sagt. Mér liggur við að segja að menn séu að stofna möguleikum okkar til að koma okkur út úr vandanum í verulegt uppnám. Ég hvet hv. þingmenn stjórnarliðsins til að velta fyrir sér hvaða afleiðingar þessi gjörð þeirra muni hafa og hvort menn telji virkilega að nú sé tíminn til að fara að rugga bátnum í mikilvægustu grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar.