137. löggjafarþing — 22. fundur,  18. júní 2009.

birting eignasafns að baki Icesave-skuldbindingum.

[13:53]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Bhr):

Frú forseti. Mig langar að fá að vita og spyr hæstv. forsætisráðherra hvort hún hafi séð hið meinta eignasafn sem liggur að baki Icesave-skuldbindingunum. Mig langar jafnframt að spyrja hvort hún sé tilbúin til að beita sér fyrir því að þingheimur fái að sjá eignasafnið og þá ekki þann brandara sem okkur var sýndur á fundi utanríkismálanefndar.

Þá langar mig líka að spyrja hvort þú getir tryggt það að staðfest verði af alþjóðlegu (Forseti hringir.) lánshæfisfyrirtæki, fyrirgefðu hv. forsætisráðherra, að alþjóðlegt lánshæfisfyrirtæki, ...

(Forseti (ÁRJ): Hæstv. ráðherra.)

... hæstvirtur, fáist til að staðfesta að lánshæfismat Íslands muni ekki lækka vegna samningsins eða hann komi í veg fyrir eðlilega hækkun í framtíðinni.