kjararáð o.fl.
Virðulegi forseti. Því ber að fagna að við séum farin að sjá efnahagsaðgerðirnar líta dagsins ljós eina af annarri. Mig langar til þess, með leyfi forseta, að lesa hér aðeins upp úr greinargerð með frumvarpinu sem sýnir rökstuðninginn fyrir þessari aðgerð.
Það hljómar einhvern veginn svona, með leyfi forseta:
„Meginverkefni efnahagsmála næstu missiri er að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, endurreisa fjármálakerfið, ná þjóðarsátt um lykilmarkmið og viðamiklar efnahagsráðstafanir eftir hrun fjármálakerfisins.“
Síðan segir, með leyfi forseta, hér aðeins aftar:
„Meginmarkmið frumvarpsins er að laga rekstur ríkisins að gjörbreyttum efnahagslegum raunveruleika til þess að mæta stórfelldum tekjusamdrætti vegna efnahagskreppunnar.“
Þessi breyting gefur okkur 12 milljónir í A-hluta og 38 milljónir í B-hluta samkvæmt mati sem fram kemur í frumvarpinu. Þetta er því gríðarlega mikil efnahagsaðgerð sem hér er á ferðinni.
Það er fleira sem hangir á spýtunni. Núna eftir hrunið stöndum við Íslendingar frammi fyrir því að það verða gríðarlega miklar launalækkanir í þjóðfélaginu. Þessi breyting setur ný viðmið og þessi viðmið eru skemmandi fyrir launastrúktúrinn í ríkiskerfinu. Það er algjörlega ljóst að nema laun forsætisráðherra verði þá hækkuð verulega frá því sem nú er mun þessi launalækkun raunverulega með tímanum ná niður allt kerfið. Það er nákvæmlega það sem hv. þm. Lilja Mósesdóttir benti hér réttilega á.
Það er annar vinkill á málinu og hann er sá að þetta eykur launamun á milli opinbera geirans og einkageirans til langframa. Það sem það gerir er annars vegar að það leiðir til spekileka, eins og hv. þm. Lilja Mósesdóttir benti réttilega á, að fólk mun fremur leita í einkageirann en í opinbera geirann og að opinberi geirinn mun ekki hafa yfir jafnhæfu starfsfólki að ráða.
Jafnframt fyrir æðstu stjórnendur hjá ríkinu, sem frumvarpið á greinilega að ná til — það er augljóst að það fólk mun ekki leita eftir störfum hjá hinu opinbera heldur mun annaðhvort fara til útlanda eða út í einkageirann. Önnur hlið á málinu er sú að við höfum verið að reyna að ná fólki heim frá útlöndum, það var t.d. gert með sérstöku átaki í Háskóla Íslands. Við sáum þetta núna gerast á Landspítalanum o.s.frv. Hvernig eigum við að geta fengið fólk sem við viljum fá hingað heim vegna sérþekkingar sinnar og hæfileika til þess að snúa aftur ef við gerum það ekki með launum?
Viðmiðið fyrir kjararáð verður þá í framtíðinni: hæstu laun; laun forsætisráðherra. Við vitum að þetta er popúlismi og ekkert annað, þetta er til að slá ryki í augun á almenningi, láta fólk halda að það sé verið að ná einhverju. Orðalag eins og hæstv. tryggingamálaráðherra notaði hér áðan, sjálftökulið og annað slíkt, um menn eins og Pál Magnússon útvarpsstjóra, menn eins og Þorgeir Pálsson hjá Flugstoðum, og svona menn, nokkra menn sem hægt er að telja á tíu fingrum — þetta er popúlismi, ómerkilegur popúlismi.
Við vitum að laun þingmanna eru allt of lág. Það er þess vegna sem ekki er meira atgervi í sölum Alþingis en raun ber vitni. Við höfum ekki fengið fólk, klárt fólk, sem hefur víðtæka reynslu, mikla reynslu, til þess að koma hér inn og taka að sér þessi störf vegna þess að fólk hefur einfaldlega ekki efni á því. Ég ætla að endurtaka það: Það er þess vegna sem atgervið er ekki meira hér í sölum Alþingis en það er.
Hæstv. tryggingamálaráðherra, þetta snýst ekki um sjálftökufólk. Þetta snýst um atgervi, atgervi fólksins sem á að stjórna þessum ríkisstofnunum, atgervi okkar hér inni á þingi. Þetta er popúlismi af ódýrustu sort, ódýrustu sort.
Mig langar að beina orðum mínum til hæstv. fjármálaráðherra þegar hann talaði um samræmingu í launakjörum og annað slíkt: Munu þá ríkisforstjórar fá einkabílstjóra? Munu ríkisforstjórar fá þá þau hlunnindi sem ráðherrar fá nú þegar? Munu ríkisforstjórar fá þau eftirlaunakjör sem ráðherrar fá nú? Hvernig verður þessu öllu saman háttað?
Ég segi: Þetta er vanhugsað, áhrifin hafa ekki verið hugsuð. Það er yfirmáta hallærislegt að segja að þessi aðgerð sé vegna erfiðleika í efnahagsmálum. Það er miklu heiðarlegra að segja, eins og hæstv. forsætisráðherra sagði: Þetta snýst ekki um peninga, þetta snýst um einhvers konar tekjujöfnun í þjóðfélaginu. Ég segi enn og aftur: Þetta mál er popúlismi og ríkisstjórnin er að reyna að skora ódýr stig.