137. löggjafarþing — 22. fundur,  18. júní 2009.

kjararáð o.fl.

114. mál
[20:37]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég hlýt að lýsa undrun minni á málflutningi sem hafður hefur verið frammi í kvöld að hér tali hv. þingmenn eins og að við eigum fullt af peningum og það sem við þurfum helst að gera núna sé að hækka laun. Það var þannig á þeim árum sem við erum nú að hreinsa upp eftir öll saman að menn hækkuðu mikið í launum og þá var alltaf sagt að það væri vegna þess að ef þeir fengju ekki þessi laun færu þeir til útlanda.

Ég segi nú bara: Guð gæfi að þeir hefðu farið til útlanda. (Gripið fram í: Læknarnir? Þeir fóru.) Hv. þingmaður, ég er ekki að tala um lækna. Ég er að tala um þá menn sem rifu hér upp laun á undanförnum árum og einmitt þessi ohf.-fyrirtæki, sem ég er út af fyrir sig á móti og mun koma að síðar. Einhvern tímann á næsta vetri væntanlega og ætla ekki að fara út í hér, laun þeirra drógust áfram og við hljótum öll, held ég, hv. þingmenn, að sjá að þau eru úr hófi við allt annað sem er hjá ríkinu.

Ég held og ég veit að fólk kann að meta það að tekið er á þessum málum þó að vissulega sé hér ekki um stórar upphæðir að ræða. Vegna þess að athöfn skiptir oft miklu máli, það eru ekki alltaf upphæðirnar sem skipta máli. Ég held að í þessu sambandi skipti athöfnin máli, að við sýnum að við ætlum að reyna að hafa stjórn á því sem hér fer fram.