Icesave -- endurskoðun raforkulaga -- greiðsluaðlögun -- vinnubrögð á Alþingi o.fl.
Frú forseti. Mig langar að kveðja mér hljóðs um störf þingsins. Ég er enn þá alveg rasandi hissa á þeim vinnubrögðum sem ég verð var við í þinginu. Seinasta og skýrasta dæmið er náttúrlega gærdagurinn þar sem til stóð að framkvæmdarvaldið héldi Icesave-samningnum leyndum fyrir þingi og þjóð þangað til honum var lekið í fjölmiðla og framkvæmdarvaldið varð að bregðast við og láta þingið fá samninginn til skoðunar. Það er ekkert ósvipað með margt annað sem gert er í þinginu. Það er verið að vinna í nefndum hver ofan í aðra. Maður á stundum að vera á þremur nefndarfundum í einu eða á fundum á vegum framkvæmdarvaldsins. Það er ekki eitthvert náttúrulögmál að þetta þurfi að vera svona, frú forseti, þetta er spurning um skipulag og vinnulag og það er mjög einfalt mál fyrir Alþingi Íslendinga að fá einfaldlega sérfræðinga í tímastjórnun til að skipuleggja starfsemi þingsins. Það veitir ekki af því. (Gripið fram í.) Já, ókei. En þetta er spurning um að koma skipulagi á störfin.
Ég verð vitni að vinnubrögðum sem mér hugnast ekki og eru til vansa því að ég sé löggjöf sem er afgreidd á hundavaði. Þingmenn geta gert grín að því, ef þeim sýnist svo, en þetta er þeim að kenna og þetta er þeim ekki til sóma. Það er alveg á hreinu. Það sagði mér einn starfsmaður þingsins að þetta hefði aldrei verið svona slæmt og hann þakkaði guði fyrir að Alþingi væri ekki sjúkrahús því að þá væru sjúklingarnir allir löngu dauðir og búið að reka starfsfólkið. Ég segi það með honum og Íslendingar mega kannski vera þakklátir fyrir það að hér eru bara framleidd lög en ekki pylsur því að þá væri kannski verr komið fyrir þjóðinni en ella. En þetta er eitthvað sem ég legg áherslu á og mér finnst að vinnuhópur á vegum frú forseta sem á að bæta störfin á þingi taki sem hraðast til starfa og reyni að koma almennilegu skikki á störfin, þannig að vinnan verði unnin skipulega af því að þannig afköstum við einfaldlega meiri og betri vinnu.