137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[12:08]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S):

Virðulegi forseti. (Gripið fram í: Ætlarðu að tala eða …?) Það vekur kátínu þegar maður tekur ekki strax til máls. Maður þarf tíma til að undirbúa sig, sérstaklega þegar um það er að ræða að það frumvarp sem hér er lagt fram kemur manni dálítið á óvart. Eftirvæntingin eftir þessu plaggi hefur verið mjög mikil og landsmenn allir hafa beðið í ofvæni í óralangan tíma og búist við því að afraksturinn af þeirri vinnu sem ríkisstjórnin hefur lagt í yrði töluvert meiri um sig og ítarlegri en hér liggur fyrir. Í mörgu minnir þetta á söguna af því þegar menn biðu eftir því að fjallið tæki jóðsótt og svo fæddist lítil mús.

Við getum farið aðeins yfir söguna og horft til þess að 1. febrúar tók minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna til starfa í skjóli Framsóknarflokksins. Krafan sem þá var uppi var um bætta verkstjórn, aukið gegnsæi, opna stjórnsýslu og hvaðeina. Á þeim tíma sem liðinn er hefur einfaldlega verið uppi sú krafa að núverandi ríkisstjórn uppfyllti þær kröfur betur en menn virðast upplifa að sé raunin. Til marks um þetta má nefna að sú umræða sem farið hefur fram hefði betur verið tekin á grundvelli ákveðinna tillagna eða hugmynda frá ríkisstjórninni þáverandi í aðdraganda kosninganna í apríl, 25. þess mánaðar. Þar var ákaflega lítil umræða um innihaldið í því hvað ætti að gera, vissulega var rætt um hækkaða skatta, niðurskurð útgjalda o.s.frv. og þetta hefur verið kölluð blönduð leið.

Hvernig svo sem mönnum kann að líka það er upplifun landsmanna af þessu að þeir upplifa ákveðið ráðleysi hjá ríkisstjórninni, frestun, litla kynningu. Allt er þetta heldur vandræðalegt og ber vitni um ákveðna ákvarðanafælni svo ekki sé minnst á grun um það og ákveðna vissu á sumum sviðum um sundurlyndi og ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar um leiðir að settu markmiði. Þetta hefur verið kallað aðgerðaleysi og ég ætla bara að halda mig við það orð og taka upp ákveðið hugtak sem menn hafa haldið á lofti í umræðunni undanfarnar vikur og kallað aðgerðaleysiskostnað, sem verður til í ljósi úrræðaleysis eða ráðaleysis sem einkennir vinnu ríkisstjórnarinnar við þetta verkefni. Þessi kostnaður hefur m.a. birst í allt of háum vöxtum hjá Seðlabanka Íslands og gegndarlausu tapi á bönkunum vegna vaxtaójafnaðar. Þessi reikningur verður færður á úrræðaleysi og ráðaleysi þeirrar ríkisstjórnar sem hér situr.

Nú birtist okkur sem sagt afrakstur þessara fjögurra, fimm mánaða vinnu og honum er ætlað að mæta tekjufalli og væntanlegum útgjaldaauka sem leiðir af sér að menn halda ekki þau fjárlög sem Alþingi Íslendinga setti í desember. Afraksturinn birtist okkur nú í tillögum um hækkun skatta, lækkun launa og aðhaldi í opinberum rekstri sem birtist aðallega á mýkri sviðum ríkisútgjaldanna, inni í svokölluðum tilfærslum hjá ellilífeyris- og örorkuþegum ásamt því að dregið er úr framkvæmdum og þá sérstaklega vegaframkvæmdum. Vel við hæfi að hæstv. samgönguráðherra gengur þá hér fyrir púltið þegar það er nefnt og væri fróðlegt að fá upplýsingar um það hvar og við hvaða framkvæmdir menn ætluðu að staldra í þeim niðurskurðaráformum sem þar væru fram undan.

Það er almennt metið svo og ég held að menn greini ekkert á um það að þær skattahækkanir sem hér eru boðaðar muni hægja á hagvexti. Það er ljóst að þær munu draga úr umsvifum fyrirtækja og neyslu almennings. Sömuleiðis mun samdráttur í framkvæmdum hafa sömu áhrif og ég vil taka undir þau orð sem komu fram fyrr í umræðunni hjá hæstv. fjármálaráðherra um það að menn verða að íhuga það vel hversu hratt á að ganga fram í því að keyra niður þennan halla því að það er ákveðin hætta á því þegar við göngum svona hart fram að hallinn aukist fremur en að dragi úr honum, þ.e. að vandinn vaxi ef við göngum of hart fram í því að ná niður gjöldum. Þetta er fyrirkvíðanlegt því það er ekki annað sjá í því frumvarpi eða þeim drögum að frumvarpi sem hér liggja fyrir en að sama verklag sé boðað við fjárlagagerðina árið 2010 nema að þá verður aukið í skatta því að ætlunin er, eins og kemur fram í greinargerðinni með frumvarpinu, að breyta ákveðnum hlutum þeirra skattahækkana sem hér eru uppi — ef ég skil málið rétt — í almenna hækkun tekjuskatts og það yrði þá gert í tengslum við fjárlagagerð ársins 2010. Það liggur því fyrir að áfram verður um frekari skattpíningu að ræða, áfram verður um frekari álögur á atvinnulíf að ræða.

Óvissan í þessu viðfangsefni er gríðarlega mikil og kemur raunar ágætlega fram í þeim gögnum sem við höfum fengið í hendur frá stjórnvöldum. Það má geta þess að fjárlaganefndin fékk í hendur plagg frá fjármálaráðuneytinu þar sem þessu eru gerð ágætlega skil.

Þar segir að ýmsir þættir geti breytt niðurstöðu fjárlaga, annars vegar til lækkunar á tekjuáætlun ríkissjóðs fyrir árið 2009 og í öðru lagi vegna breyttra þjóðhagsforsendna, m.a. verðlags, sem hefur áhrif til að hækka útgjaldaferilinn.

Svo segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Mikil óvissa ríkir um slíka útreikninga þegar lengra er litið fram í tímann. Það á við bæði hvað varðar þjóðhagsforsendur og vaxtagreiðslur, m.a. vegna óvissu um endurheimt eigna íslenska bankakerfisins erlendis.“

Þetta eru stærðir sem menn hafa skynjað fyrir margt löngu og gert sér grein fyrir því að samdráttur í eftirspurn hins opinbera er líklegur til að auka niðursveifluna og lengja tímann þar til botni er náð. Það kemur líka fram í þessu minnisblaði að áhyggjur af því að aukinni skattheimtu fylgi einnig gallar, þ.e. að hún dragi úr ráðstöfunartekjum heimila og fyrirtækja og þar með eftirspurn þeirra.

Þetta eru að sjálfsögðu vel þekktar staðreyndir og ljóst í ýmsum gögnum sem þessi ríkisstjórn hefur sett frá sér að henni er þetta ágætlega ljóst og nægir í því sambandi að nefna yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf þann 6. mars sl. um stórátak í endurreisn atvinnulífsins. Þar kom fram vilji ríkisstjórnarinnar til þess að búa til eða stofna til, greiða fyrir 4.000–6.000 ársverkum og það er ágætlega við hæfi að spyrja af þessu tilefni sem nú er hvernig sú áætlun gangi fram. Þarna eru inni ýmis atriði sem eru mjög umdeilanleg, ég get nefnt sem dæmi Tónlistarhúsið. Því var ætlað að skapa um 600 ársverk. Það væri fróðlegt að vita hvernig því reiddi af, en ekki síður væri fróðlegt að fá upplýsingar um það hvernig áformin um Búðarhálsvirkjun, virkjun og stækkun álversins í Straumsvík og síðan ákveðin fyrirtækjauppbygging á sviði sólarkísils gangi. Allt í allt er inni í þessari áætlun gert ráð fyrir því að það verði til einhvers staðar á bilinu 1.500–2.000 störf. Eftir því sem ég best veit eru þessi þrjú verkefni í uppnámi svo ekki sé minnst á álverið í Helguvík og þau áform sem þar eru uppi. Ef ég man rétt ræddi hæstv. utanríkisráðherra mjög fjálglega um fjölda þeirra starfa sem þar ættu að verða í boði og tengjast því verki sem þar er áformað að fara í.

Því nefni ég þetta hér að þessi verkefni eru öll stór liður í fjárhagsspá fjármálaráðuneytisins sem kom út og var gefin út ekki fyrir margt löngu og er alveg ljóst að þessi stóru verkefni sem eru svona gríðarlega mikilvæg við framgang efnahagsmála hér í landi eru í uppnámi, þeim hefur seinkað. Þar af leiðandi leiðir það til þess að við hljótum að þurfa að endurskoða þær áætlanir sem unnið er eftir og því er ágætlega við hæfi að spyrja hæstv. fjármálaráðherra eftir því hvernig menn ætli að mæta þeirri seinkun sem fyrirsjáanleg er í þessum stóru verkefnum, annars vegar Búðarhálsi og stækkuninni í álverinu í Straumsvík og síðan þeim drætti sem fyrirsjáanlegur verður á álverinu í Helguvík.

Það er alveg ljóst samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið að ef ekki verður af þessum framkvæmdum minnkar hagvöxtur í þessum efnum um 1% á árinu 2009, 2% á árinu 2010 og 2,5% á árinu 2011. Að sjálfsögðu hljóta menn að þurfa að taka tillit til þessara þátta við það verkefni sem fram undan er í því að búa til og mæta þeim kostnaði sem við sjáum fram á að við verðum fyrir í fjárlögum þessa árs.

Það vekur líka nokkra athygli í því frumvarpi sem hér liggur fyrir hvernig forgangsröðun verka er. Erfiðleikarnir eru lagðir á heimilin og fyrirtækin í formi hærri skatta þannig að þau hafa minni afgang. Forgangsröðunin við það hvernig þau ráðstafa því litla fé sem þau eiga eftir er lögð í þeirra hendur meðan ríkissjóðurinn virðist ætla að hafa allt sitt á þurru. Það virðist eins og þannig sé útgjaldaaukanum velt yfir á heimilin fremur en ríkissjóðinn sjálfan og veruleg lækkun ríkisútgjalda er ekki sjáanleg í þessum efnum og virðist vera ríkisstjórninni um megn því að einungis er um að ræða 1.800 millj. kr. lækkun sem sett er fram hér í rekstri en það er hins vegar algjörlega óútfært hvernig það er, þetta er sett fram í þremur meginyfirmarkmiðum. Það er hins vegar athyglisvert að elli- og örorkulífeyrisþegum er ætlað að spara og draga saman í formi lægri bótagreiðslna frá ríkissjóði um því sem næst sömu fjárhæð.

Það er athyglisvert að við skulum endilega byrja á þessum hópi. (Gripið fram í: Það eru breiðu bökin.) Það eru breið bök innan um en ég meina, ef við horfum bara til þess hvernig staðan var við hrunið mikla, bankahrunið, getum við alveg leitt hugann að því hver sá hópur var í samfélaginu sem fór hvað verst út úr því, sennilega sá hópur sem átti mestan sparnaðinn almennt og það er frekar eldra fólk. (Gripið fram í.) Hv. þingmenn eru greinilega sammála því sem ég er að segja.

Það kemur fram í greinargerð með frumvarpinu á bls. 15, með leyfi forseta:

„Á árinu 2008 náðust fram miklar réttarbætur til handa öldruðum og öryrkjum í formi afnáms makatenginga, hækkunar bóta, hækkaðs frítekjumarks vegna atvinnutekna, sérstaks frítekjumarks á lífeyrissjóðstekjur öryrkja, sérstaks frítekjumarks á fjármagnstekjur og lækkunar skerðingarhlutfalls ellilífeyrisþega.“

Svo segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Óhjákvæmilegt er að stíga skref til baka við núverandi aðstæður.“

Gagnvart þessum hópum? Hvers vegna í ósköpunum getum við ekki horft til þess að það sé óhjákvæmilegt að taka einhver skref til baka gagnvart öðrum þáttum í ríkisrekstrinum sem hefur bólgnað út í góðæri síðustu ára? Ég ætla bara að minna t.d. á breytingar á skuld Ríkisútvarpsins við ríkissjóðinn, 600 milljónir. Hvers vegna í ósköpunum er þeirri stofnun ekki gert að spara við sig þær milljónir fremur en að leggja 1.800 milljónir á þann hóp sem hér um ræðir?

Það sem ég á við er fyrst og fremst þetta: Það er fullt af færum í ríkisrekstrinum sjálfum sem má taka til og draga til baka, stíga skref til baka, umfram það að ráðast á þá áfanga sem náðst hafa í réttindabaráttu (Forseti hringir.) þeirra hópa sem veikara standa.