137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[12:36]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að hæstv. fjármálaráðherra skoðar efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins með miklum velvilja svo ekki sé talað um með mikilli mildi, eins og hæstv. forseti Alþingis komst að orði í gær. Ég skora á hæstv. ráðherra að taka þær mjög alvarlega og fara ítarlega í gegnum þær. Ég geri mér það alveg fullljóst af þeim viðbrögðum sem fyrir liggja frá forkólfum verkalýðshreyfingar og Samtaka atvinnulífsins að það er engin sérstök ánægja með það að áhrif þeirra á stýringu þess gríðarlega fjármagns sem inni í lífeyrissjóðunum er verði dregið niður.

Ég hef stórar athugasemdir við þau áform lífeyrissjóðsforkólfanna eða Samtaka atvinnulífsins og verkalýðsforustunnar að leggja 25 milljarða á ári af lífeyrisiðgjöldum inn í Fjárfestingarsjóð Íslands. Það verða 75 milljarðar þegar ósk þeirra er uppfyllt þannig að ekki er einróma álit á þeim tillögum eða hugmyndum sem þessir ágætu einstaklingar setja fram. Til viðbótar þessum áformum ætla þeir að fara að „spandera“ og djöflast með lífeyrissparnað almennings í landinu til framkvæmda og ég held að það sé til muna skynsamlegra að skoða það heldur en lífeyrissjóðirnir verði nýttir til að menn fari að braska í fyrirtækjarekstri á Íslandi. Hvert eru menn komnir þegar svo er komið í máli þeirra? Ég tel að þeir hafi engar heimildir að lögum til að leyfa sér að fara þannig með lífeyrissparnað almennings í landinu að leggja hann í fyrirtækjabrask.