ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Það kom fram á þeim fundi með hæstv. fjármálaráðherra og aðstoðarmanni hans sem ég vísaði til áðan að menn væru þar að tala um niðurskurð upp á 3,3 milljarða og tilfærslur upp á 3 milljarða, ef ég man það rétt. Þannig skildi ég það.
Ef hæstv. ríkisstjórn heldur að hún geti haldið í tekjur með því að minnka aflaheimildir er það alveg nýtt fyrir mér. Það hefur komið skýrt fram að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er búinn að gefa það út að hann ætli að fara eftir 20% aflareglu sem þýðir 150 þús. tonna aflamark í þorski. Það þýðir að verið er að skerða það úr 160 þús. tonnum niður í 150 þús. tonn. Þess vegna er það eðlilegt að spyrja hvort menn hafi ekki áhyggjur af því ef það verður gert. Hv. þm. Guðbjartur Hannesson, sem er formaður fjárlaganefndar, hefur ekki einu sinni vitneskju um það sem hæstv. sjávarútvegsráðherra er búinn að tilkynna á erlendri grund. Það er kannski í samræmi við allt annað að menn tilkynna það annars staðar og láta okkur lesa um það hér.