137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[14:39]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil sem formaður efnahags- og skattanefndar þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framlagningu málsins og ríkisstjórninni allri og vænti þess að umfjöllun þess í nefndinni verði skjót en vönduð eðli málsins samkvæmt. Hér er um að ræða aðgerðir sem þarf að grípa til á miðju ári og þurfa þess vegna að fá nokkuð greiða leið í meðförum þingsins.

Sú staðreynd að hér er verið að brúa gat á miðju ári gerir það auðvitað líka að verkum að aðgerðir til að draga úr rekstrarkostnaði ríkisins eru miklu síður tiltækar en í fjárlagagerð fyrir heilt ár. Menn þekkja hinn opinbera rekstur, hversu lengi ákvarðanir um breytingar og ráðstafanir eru að skila árangri í útgjöldunum sjálfum vegna þess það eru einfaldlega ýmiss konar frestir og réttindi og formleg ferli sem hið opinbera þarf að fara í gegnum í mun ríkari mæli en einkageirinn sem gerir það að verkum að iðulega er varla undir hálfu ári fyrr en ákvarðanir í stærri atriðum eru farnar að bíta, frá því að þær eru teknar. Þó er auðvitað alltaf hægt að ná umtalsverðum árangri í sparnaði og hagræðingu og það er gott að sjá að að þessu sinni eru gerðar enn frekari hagræðingarkröfur til ríkisins á yfirstandandi ári og þegar menn skoða þær kröfur um aðhald í rekstri á síðari hluta og frekari niðurskurði en áður var ákveðið. En þá verða menn líka að hafa í huga að samhliða þessu sæta ríkisstofnanir nú mun meira aðhaldi um útgjöld sín, treysti ég mér til að fullyrða eftir margra ára reynslu af störfum í fjárlaganefnd þingsins, miklu meira aðhaldi í því að standa við þá útgjaldaramma sem þeim hafa verið faldir.

Ég hygg að sá þingmaður sem talaði á undan mér, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, þekki það jafn vel og ég og trúlega miklu betur, að í raun og veru það eitt að sá geiri ríkisútgjaldanna sem hann hafði ábyrgð fyrir til skamms tíma, þ.e. heilbrigðisgeirinn, það eitt að það takist að halda rekstrinum innan þess ramma sem lagt er upp með í ársbyrjun, er út af fyrir sig gríðarlegur árangur og breyting frá því sem verið hefur um langt árabil. Ég vona og treysti því að við séum að ná fram slíkri breytingu í rekstrinum sem er auðvitað gríðarlega mikilvæg auk þeirrar hagræðingarkröfu sem hér er.

Það er auðvitað þannig að í þeim ákvörðunum sem hér eru kynntar eru margvíslegar ákvarðanir sem fáir ef nokkrir í þessum sal kysu að taka ef við hefðum ótakmarkaða fjármuni. En það er því miður ekki svo. Staðreyndin er sú að á hverjum degi rekum við þennan sameiginlega sjóð okkar með 500 millj. kr. halla. Það er auðvitað ekkert annað en skuldir á börnunum okkar. Það stendur þess vegna upp á okkur að taka á því og taka fjölmargar erfiðar ákvarðanir, bæði til skemmri tíma eins og verið er að gera í bandorminum en líka til lengri tíma í nokkurra ára áætlun í ríkisfjármálum. Helstu tölur í því hafa verið kynntar fyrir árið 2010 og síðan markmiðin fyrir árið 2011 og ég held að það sé engum blöðum um það að fletta að þar þurfa allir að taka á.

Ég deili þeim áhyggjum sem menn hafa af skattlagningu á atvinnulífið við þessar aðstæður. Það er full ástæða til að gjalda varhuga við allri skattlagningu á atvinnulífið vegna þess að þar mun auðvitað fyrst og síðast reyna á á næstu mánuðum og missirum að okkur takist að fá atvinnulífið aftur í gang, kraft í atvinnulífið, að það skapist ný störf þannig að við hættum að tapa störfum með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið en förum að vinna störf. Þess vegna þurfum við að hlífa atvinnulífinu eftir fremsta megni.

Hins verða menn að gæta í þessari umræðu að það voru Samtök atvinnulífsins sem sjálf lýstu því yfir að þau teldu að sá kostnaður sem leiddi af Atvinnuleysistryggingasjóði og þeim miklu útgjöldum sem hann hefur orðið fyrir hafi alltaf verið borinn af atvinnulífinu, hann hafi alltaf verið borinn af tryggingagjaldinu og það væri einfaldlega óraunsætt annað en að sú skipan héldist áfram því að ofan á allt annað sem skattgreiðendur þurfa að taka á næstu mánuðum og árum, væri ekki líka hægt að láta þá taka hallann á Atvinnuleysistryggingasjóði. Mér fannst það mjög hraustlega gert af Samtökum atvinnulífsins og vera gott fordæmi fyrir aðra aðila í samfélaginu vegna þess að það verkefni sem við stöndum frammi fyrir er með þeim hætti og af þeirri stærðargráðu að við munum aldrei brúa þetta gríðarlega bil, þennan ofboðslega hallarekstur, öðruvísi en að við tökum öll á og öxlum öll nokkurn hlut og þá auðvitað þeir þann mestan sem besta aðstöðu til þess hafa og ég held að ýmislegt bæði efnislegt og líka táknrænt sem ríkisstjórnin hefur gripið til vísi til þess. Það er til að mynda hægt að benda á það að hér eru loksins felldar niður algerlega óþarfar greiðslur til handhafa forsetavaldsins í fjarveru hans. Það er löngu tímabært mál og sjálfsagt, þó að það varði svo sem ekki stórar upphæðir þá er það táknrænt þegar forsætisráðherra hefur sjálfur frumkvæði að því að falla frá sérgreiðslum til sín sem gætu að jafnaði á ári hafa numið um 3 millj. kr. og hafa gert það til forsætisráðherra á umliðnum árum, hreinar aukagreiðslur sem sjálfsagt er að afnema. Lítið frumvarp sem hér var rætt um í gær varðaði laun æðstu stjórnenda hjá ríkinu, sú ákvörðun að þeir sem hafa yfir 700 þús. kr. í mánaðartekjur verði þeir einu sem taki tekjuskattshækkun það sem eftir lifir þessa árs og þar fram eftir götunum. Ég held að með því að stilla þessu fram með þessum hætti, taka í raun og veru þessu tilboði Samtaka atvinnulífsins um að hækka tryggingagjaldið, fara mjög hóflega í aðrar skattbreytingar og láta þær snúa fyrst og fremst að þeim tekjuhæstu og fara jafnframt í sjálfsagðan og eðlilegan niðurskurð í ríkisútgjöldunum og aðhald í rekstri og síðan umtalsverðan niðurskurð í útgjöldunum á næsta ári, 10% eða þar um bil, í stofnunum utan velferðarþjónustunnar sem sannarlega verður verkefni að vinna að en ég treysti að nái fram að ganga.

Ég vil út af fyrir sig lýsa ánægju minni með þær raddir sem hér hafa heyrst frá a.m.k. sumum stjórnarandstöðuflokkanna að í þessu efni megi jafnvel ganga lengra fram, að það sé fleira í ríkisrekstrinum sem taka megi til endurskoðunar og spara. Ég held að þar séu sannarlega mörg sóknarfæri.

Ég vil líka lýsa ánægju minni með ýmsar hugmyndir sem hafa komið fram sem gætu hugsanlega orðið til þess að létta okkur þennan leiðangur hvort sem það eru hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um skattlagningu á inngreiðslur í lífeyrissjóðina eða aðrar slíkar hugmyndir. Án þess að ég vilji leggja efnislega mat á þær þá held ég einfaldlega að við lifum þá tíma í sögu landsins að það sé mikilvægt að fólk úr öllum flokkum og fólk af öllum sviðum samfélagsins sameinist í því að reyna að leggja fram allar þær hugmyndir sem við eigum tiltækar sem geta skilað okkur árangri í því að brúa þetta bil. Hallinn sem hér er um að ræða er í raun og veru nærfellt helmingur ríkisrekstursins og við sjáum það öll í hendi okkar að helmingur ríkisútgjaldanna eru bætur og ekki getum við skert þær um slík hlutföll og ekki getum við skorið af ríkisreksturinn af þeirri stærðargráðu þó að sannarlega megi víða í honum eflaust betur fara með hverja krónu og við hljótum að kappkosta að gera það á komandi árum.

Ég ítreka þakkir mínar til hæstv. fjármálaráðherra fyrir kynninguna.