137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[14:52]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar upplýsingar. Það er auðvitað mikilvægt að aðhalds og sparnaðar sé gætt á þeim sviðum sem ekki er fjallað um í þessu frumvarpi. Ég var fyrst og fremst að velta fyrir mér þessu frumvarpi og þau atriði sem hann vísar til hafa, samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk hjá hv. formanni fjárlaganefndar milli umræðna, komið fram fyrir fjárlaganefnd en ekki fyrir þingið. Ég vænti þess að þar sé um að ræða sparnað sem ekki þurfi lagabreytingar til þannig að ég verð þá að skoða þann þátt betur. Af lestri frumvarpsins varð ekki ráðið að um væri að ræða önnur ráðuneyti en þau sem þarna greinir en hv. þm. Helgi Hjörvar er auðvitað reyndur fjárlaganefndarmaður og þekkir þessi mál afskaplega vel þannig að það er gott að fá þetta fram.

En fyrst ég hef tækifæri til að spyrja hv. þm. Helga Hjörvar út úr er annað atriði sem mig langar til að fá skýringu á vegna þess að við þingmenn stjórnarandstöðunnar a.m.k. erum í þeirri stöðu að við sáum ekki þetta frumvarp fyrr en í gærkvöldi. Við höfum því haft takmarkaðan tíma til að fara yfir einstök atriði í því. En ég velti fyrir mér hvort það er ekki réttur skilningur hjá mér að um það bil 20 milljarða gat á fjárlögum þessa árs sem loka á með þessu frumvarpi sé að hálfu leyti fengið með því að færa tekjur fram á þetta ár sem ella hefðu komið inn í ríkissjóð á næsta ári með því að flýta gjalddögum á fjármagnstekjuskatti. Ég spyr hv. þingmann um þetta (Forseti hringir.) til að glöggva mig betur á atriðum málsins.