137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[15:47]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er dálítið gaman að því að nú er hæstv. fjármálaráðherra farinn að spyrja mig hvað eru háar tekjur en við áttum hér orðastað í febrúar sl. þar sem ég spurði hann um fyrirætlanir hans um að setja hátekjuskatt á og þá sagði hann að fólk með lágar tekjur og meðaltekjur ætti ekki að þurfa að hafa áhyggjur. Þá spurði ég hann einmitt að því hvað hann teldi vera háar tekjur og ef mig ekki misminnir vék hann sér fimlega undan því eins og honum er einum lagið en sagði þó, það man ég, að fólk með 70 millj. kr. á mánuði væri fólk með háar tekjur. Ætli ég sendi ekki það svar aftur heim, en án gríns ætla ég ekki að fara að skilgreina háar tekjur.

Skattkerfi okkar er þannig uppbyggt núna að menn borga hærri skatt eftir því sem tekjur þeirra hækka og fólk með 700 þús. kr. tekjur — ég geri ekki lítið úr því að það eru ágætar tekjur — hefur gert skuldbindingar miðað við þær tekjur, skuldbindingar sem hafa allar farið úr böndunum í því ástandi sem við erum í núna. Ég óttast að með því að skattleggja þetta fólk sérstaklega og meira núna séum við einungis að auka á vandann vegna þess að þá fjölgar í þeim hópi sem nær ekki að standa við skuldbindingar sínar og þar með fjölgar þeim tilfellum þar sem ríkið þarf hugsanlega að koma til bjargar og þá erum við komin í vítahring sem við munum ekki komast út úr.

Varðandi vaxtaspurninguna þá fagna ég því ef þarna hefur orðið einhver breyting á. Þó verð ég að draga í efa að það komi til móts við öll þau sjónarmið sem nefnd voru (Forseti hringir.) vegna þess að þar var ekki, ef ég kann þetta rétt, um það að ræða að tvísköttunarsamningarnir væru aðalatriðið í þeim málum.