ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegi forseti. Hvað varðar sóknargjöldin þá er ég kannski ekki viss um að ég skilji spurninguna rétt, en það er sem sagt lækkuð sú fjárhæð sem greiðist til safnaða og skráðra trúfélaga. (BÁ: En það er ekki minna innheimt.) Nei, eða sem sagt, þetta er reikningur sem fer þarna fram. Sú fjárhæð sem miðað er við er lækkuð.
Hvað varðar þolendur afbrota þá verð ég að viðurkenna að auðvitað er ekki sársaukalaust að leggja það til að fækka greiðslum í þessum málaflokki. Það er bara þannig að þegar við stöndum frammi fyrir niðurskurði þá verður að reyna að finna einhverja skynsamlega útfærslu á því. Einn kosturinn var sá að leggja til að þessi lög yrðu hreinlega felld úr gildi — okkur fannst það vera mjög slæmur kostur — og leggja þess í stað til að lágmarkið yrði hækkað, þær bætur sem eru greiddar, úr 100 þúsund í 400 þúsund. Verulegur hluti þeirra sem fær greiddar bætur á grundvelli þessara laga er einmitt vegna brota sem eru í lægri kantinum og þá getum við tekið sem dæmi pústra, slagsmál og annað. Það sem við erum að reyna að gera hér er að segja: Þessi brot heyra þá ekki undir lögin. Þá á bara tjónþoli kröfu á tjónvald samkvæmt lögum um skaðabætur þannig að það fer þá eftir almennum reglum. Það sem við erum að segja hérna er að við leggjum til að ríkissjóður ábyrgist greiðslu þessara bóta þegar um alvarleg afbrot er að ræða þannig að minni háttar afbrot falli þarna fyrir utan. En ég vona sannarlega að allsherjarnefnd fái þetta til skoðunar og þá munum við kynna fyrir allsherjarnefnd ítarlegri tölfræði um hvað sé að ræða hér.