ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Frú forseti. Ég ítreka beiðni mína frá því í morgun um að ráðherra efnahagsmála sem ég vil spyrja út í ákveðna hluti sem snerta efnahagsmál verði viðstaddur þá umræðu sem hér um ræðir og bið frú forseta í allra mestu vinsemd að kalla hæstv. forsætisráðherra til þings þannig að við getum rætt meðal annars við hana um það frumvarp sem ríkisstjórn hennar hefur lagt fram. Með fullri virðingu fyrir hæstv. fjármálaráðherra sem svarar hér mörgum spurningum þá vil ég inna hæstv. ráðherra um mjög mikilvæga málaflokka eins og aldraða og öryrkja og fleira í þeim efnum. Ég tel mjög mikilvægt að fá hæstv. forsætisráðherra í þessa umræðu og annað ekki líðandi. Þess vegna beini ég þeim tilmælum og beiðni til hæstv. forseta að hún geri ráðherranum viðvart um að nærveru hennar sé óskað í sölum Alþingis.