137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[17:01]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um þetta líka, að það er mjög mikilvægt að fara í greiningu á því af hverju útgjöld jukust svona mikið, sérstaklega á þessum tíma frá 2007 í lok góðærisins til fjárlaga 2009.

Ég minntist á það í ræðu minni áðan að gjaldahækkun ráðuneytanna frá reikningi 2007 til fjárlaga 2009 hafi að meðaltali verið 28%. Það er tiltakanlegur munur á gjaldahækkun samfylkingarráðuneyta á þessum tíma eða ráðuneytum þess flokks sem kom nýr inn í ríkisstjórn 2007. Ég veit ekki hverju það sætir en það er athyglisvert að gjaldahækkun samfylkingarráðuneyta var 40% á þessum tíma á meðan gjaldahækkun annarra ráðuneyta var 17%. Gjaldahækkun í æðstu stjórn ríkisins frá reikningi 2007 til fjárlaga 2009 var 7% og gjaldahækkun forsætisráðuneytisins var 26% í meðaltalinu. Maður setur spurningarmerki t.d. við utanríkisráðuneytið, það kann að vísu að einhverju marki að skýrast af tilfærslu verkefna, það voru umfangsmiklar tilfærslur á verkefnum á þessum tíma líka sem kann að skýra að hluta til útgjaldaaukninguna en útgjaldaaukningin í utanríkisráðuneytinu er 50% á þessu tveggja ára tímabili. (Gripið fram í: Þróunaraðstoðin.) Já, að hluta til þróunaraðstoðin, það er rétt, en rekstrargjöldin í utanríkisráðuneytinu hækka allverulega á þessum tíma og inni í þeim er bara að hluta til þróunaraðstoðin.

Ég tek einmitt heils hugar undir með hv. formanni fjárlaganefndar að þegar við erum að skera niður til velferðarkerfisins annars vegar verðum við að greina mjög vel af hverju þessar útgjaldahækkanir urðu í ráðuneytunum, t.d. í viðskiptaráðuneytinu um 43% og þar fram eftir götunum, í samgönguráðuneytinu um 49%, (Forseti hringir.) sem hlýst náttúrlega m.a. af hækkun framkvæmdakostnaðar, stofnkostnaðar. Það þarf að skoða þetta.