137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[17:54]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Birgir Ármannsson spyr hvort þörf hafi verið á aðhaldssamara frumvarpi frá ríkisstjórninni hvað varðar ráðstafanir í ríkisfjármálum. Ég tel alls ekki svo vera og hef jafnvel efasemdir um að það sé rétt á þessari stundu að fara í mjög aðhaldssamar aðgerðir eða a.m.k. efasemdir á meðan ekki er ljóst hversu mikil næsta vaxtalækkun verður.

Hvað tryggingagjaldið varðar lögðu m.a. aðilar vinnumarkaðarins til að það yrði hækkað til þess að standa straum af auknum útgjöldum Atvinnuleysistryggingasjóðs. Það getur vel verið að slíkt muni verða íþyngjandi fyrir fjölmörg fyrirtæki en í ljósi þess að mikill þrýstingur hefur verið á ríkisstjórnina að skera (Forseti hringir.) niður í útgjöldum eru þessar aðgerðir neyðarráðstafanir.