137. löggjafarþing — 23. fundur,  19. júní 2009.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

118. mál
[17:55]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tek það fram að mér er auðvitað kunnugt um að afstaða aðila vinnumarkaðarins, svokallaðra, er jákvæð gagnvart því að hækka tryggingagjaldið í samanburði við ýmislegt annað sem er í spilunum. Ég segi hins vegar fyrir sjálfan mig að ég hef áhyggjur af þeim þætti vegna þess að ég held að við þyrftum miklu frekar á því að halda við núverandi aðstæður að grípa til aðgerða sem hvetja til ráðningar starfsmanna, hvetja fyrirtæki til þess að bæta við sig fólki, hvetja til að halda í það fólk sem þau hafa. Þess vegna hef ég sérstakar áhyggjur af hækkun launatengdra gjalda vegna þess að ég óttast að slík ráðstöfun verði frekar til þess fallin að draga úr hvatanum, að gera það að verkum að fyrirtækin ráði síður til sín nýtt fólk og haldi síður í það starfsfólk sem þegar er fyrir hendi. Þess vegna hef ég verulegar áhyggjur af þessu máli og það er þess vegna sem ég í rauninni ítreka (Forseti hringir.) spurningu mína til hv. þingmanns um þetta atriði, (Forseti hringir.) hvert hennar mat sem hagfræðings er á þessu.