ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessi svör. Það er um þetta að segja að ég vona bara að þessar upplýsingar verði aðgengilegar sem allra fyrst vegna þess að hér er, eins og hæstv. ráðherra talar um, búið að taka pólitískar ákvarðanir sem varða einstaka málaflokka og, eftir því sem mér heyrist, einstakar stofnanir að einhverju leyti. Nú veit ég ekki nákvæmlega í hvað hann er að vísa að því leyti en ég held að það sé afar mikilvægt að þetta liggi fyrir og ef málið hefur fengið stuðning í ríkisstjórn og fengið samþykki í ríkisstjórn og þingflokkum stjórnarflokkanna tel ég að við þurfum svo sem ekki að bíða eftir nefndarfundi til þess að gera þessar upplýsingar opinberar. Ef um er að ræða pólitískar ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar tel ég að það væri mjög til bóta fyrir alla umræðu um þessi mál að þessi gögn lægju skýrt fyrir.
Síðan varðandi framtíðaráætlanirnar eða heildaráætlunina hefur ég auðvitað skilning á því að það tekur einhvern tíma að koma sér saman um það og ýmsir þættir sem ráða því hvernig endanlegur frágangur þess plaggs verður. Ég verð auðvitað að játa að það hefði verið betra fyrir umræðu um þetta mál að hafa slíkt plagg í endanlegu formi fyrir framan sig. Ég vil hins vegar spyrja hæstv. ráðherra hvort hann geti gefið okkur tímasetningu á því hvenær áætlað er að kynna þessa heildaráætlun um ríkisfjármálin sem hann hefur vísað til.