137. löggjafarþing — 24. fundur,  22. júní 2009.

upplýsingar um Icesave-samninginn.

[15:14]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Bhr):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svör hans. Mér skildist á fréttum í dag að þetta eignasafn hefði rýrnað töluvert mikið síðan lagt var á það mat síðast eða um 100 milljarða eða eitthvað slíkt.

Í öðru lagi er alveg ljóst út frá þeirri skýrslu sem ég skoðaði frá CIPFA í morgun að það er ekki kafað djúpt í neitt, þeir hafa ekki séð eignasafnið, þeir hafa eingöngu farið eftir þeim tölum sem við fengum og hægt er að fá á vefnum á Island.is og er alls ekki til þess fallið að maður geti tekið upplýsta ákvörðun eða metið þetta á heildstæðan hátt.