137. löggjafarþing — 24. fundur,  22. júní 2009.

Bankasýsla ríkisins.

124. mál
[16:55]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég sé ekki af hverju vösk sveit þriggja til fimm manna og framkvæmdastjóri eigi ekki að geta séð um þetta mál úr því að það hefur verið meðhöndlað frá því í október sem eitt af ótal mörgum aukaviðfangsefnum fjármálaráðuneytisins án þess að bæta þar við nokkrum einasta manni. Ég treysti því að þetta geti gengið fyrir sig og verður væntanlega aðeins brotabrotabrot af kostnaði ríkisins við endurreisn fjármálakerfisins að halda utan um þennan eignarhlut þessi fimm ár. Menn geta auðvitað haft þá skoðun að það sé ekki nógu langt gengið þarna en það verður ekki bæði sleppt og haldið. Eignarhlutur ríkisins í þessum fjármálafyrirtækjum er staðreynd. Út frá honum verðum við að ganga.

Í öðru lagi hefur enginn mótmælt því að það sé fjármálaráðherra sem eigi að fara með hann og bera á honum pólitíska ábyrgð gagnvart þingi og þjóð og þá verða menn að finna út úr þessu í samræmi við það. Hér er farin mjög venjuleg leið í þeim efnum nema bara það að ekki er gert ráð fyrir einhverri stórri stjórn sem verði tilnefnd á grundvelli hlutfallaskipta stjórnmálaflokka heldur fámennri stjórn algerlega á faglegum forsendum. Ég held að það sé mun gæfulegri frágangur en almennt hefur verið um þessi mál að undanförnu.

Ég verð að segja eins og er að þegar ég fer að skoða þetta og kynna mér hvernig aðrar þjóðir hafa staðið að þessu, t.d. hafa nágrannaþjóðirnar mótað sér fyrir löngu skýra stefnu um aðkomu sína sem eigandi að eftir atvikum fyrirtækjum, þá gef ég því ekki háa einkunn hvernig farið hefur verið með þessi mál á Íslandi að undanförnu. Menn hafa einkavætt og oháeffað. Gjarnan hafa þá verið lagðar niður þingkjörnar stjórnir og hvað hefur komið í staðinn? Algert geðþóttavald viðkomandi ráðherra sem er dreift innan Stjórnarráðsins og hinir og þessir fagráðherrar hafa núna hreiðrað um sig og farið með eignarhaldið í alls konar ohf-fyrirtækjum. Og skoði menn bara hvernig á köflum hefur verið skipað í þær stjórnir áður en þeir fara að gagnrýna óorðið fyrirkomulag hér sem ég tel að sé til muna betra og faglegra en það sem við höfum mátt horfa upp á undanfarin ár.