störf þingsins.
Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum að undanförnu hefur hópur frumkvöðla unnið að því á undanförnum mánuðum að skapa atvinnutækifæri á Suðurnesjum með því að byggja upp heilsutengda atvinnustarfsemi og ferðaþjónustu. Það má eiginlega segja að málið snúist um það að þessir aðilar vilja sækja um að fá að nýta hluta af skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hluta af þeim tíma sem þær standa ónotaðar. Kostirnir fyrir svæðið eru, fyrir utan þau 300 störf sem ætla má að skapist í kringum þetta á næstu þremur árum, að stöðugleiki starfsfólks á heilbrigðisstofnuninni er aukinn, fæðingarhjálp fyrir fæðandi konur á Suðurnesjum. Þetta gæti aukið öryggi þeirra, en hæstv. heilbrigðisráðherra hefur dregið lappirnar í þessu máli.
Í Morgunblaðinu í morgun er haft eftir Árna Sigfússyni, bæjarstjóra í Reykjanesbæ, að á fundi með ráðherra hafi ráðherra sagt að svars við umsókn félagsins, Heilsufélags Suðurnesja, sé að vænta 15. ágúst næstkomandi. Eins og allir vita þegar um svona mál er að ræða er öll óvissa slæm og hæstv. ráðherra hefði alveg eins getað sagt nei við beiðninni eins og að draga ákvörðunina fram til 15. ágúst vegna þess að þessir aðilar munu þá að sjálfsögðu leita annað, t.d. til Reykjavíkur þar sem aðstaðan er fyrir hendi. Því vil ég spyrja um afstöðu Samfylkingarinnar, og beini máli mínu til þingflokksformanns hennar, hvort afstaða Samfylkingarinnar sé ekki klár eins og kom fram í máli hv. þm. Magnúsar Orra Schrams fyrr í vikunni, hver afstaða þingflokks Samfylkingarinnar sé í þessu máli, og ef hún er jákvæð hvort við getum ekki fengið Samfylkinguna til að beita áhrifum sínum innan ríkisstjórnarinnar til að hafa áhrif á ákvörðun heilbrigðisráðherra.